NBA-meistararnir náðu loksins samningum við J.R. Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. október 2016 21:30 J.R. Smith fagnar titlinum í sumar. Vísir/Getty
Stuðningsmenn NBA-meistara Cleveland Cavaliers geta andað léttar. J.R. Smith verður áfram hjá félaginu. Meistaraliðið snýr því aftur með alla byrjunarliðsmenn sína frá því í fyrra. J.R. Smith hefur verið samningslaus í allt sumar og því ekkert verið með Cleveland-liðinu á undirbúningstímabilinu. J.R. Smith er einn af lykilmönnum úr meistaraliði Cleveland og stórstjarnan LeBron James pressaði á það opinberlega að forráðamenn félagsins næðu samningum við leikmanninn. Nýr samningur J.R. Smith við Cleveland Cavaliers hljóðar upp á 57 milljónir dollara fyrir fjögur tímabil en hann er öruggur með að fá 45 milljónir dollara fyrir fyrstu þrjú árin. 57 milljónir dollara eru 6,5 milljarðar íslenskra króna sem er ágætis upphæð fyrir að spila körfubolta í liði LeBron James. J.R. Smith setti nýtt met með því að setja niður 204 þriggja körfur á síðasta tímabili og þá er mjög öflugur varnarmaður. Cleveland vann sinn fyrsta NBA-titil á síðasta tímabili og jafnframt fyrsta titil borgarinnar frá árinu 1964. J.R. Smith var með 12,4 stig í leik og hitti úr 40 prósent þriggja stiga skota sinna. J.R. Smith hóf æfingar með Cleveland-liðinu um helgina og spilar væntanlega sinn fyrsta leik á undirbúningstímabilinu á þriðjudaginn á móti Washington. Fyrsti leikur tímabilsins er síðan 25. október á móti New York Knicks.
NBA Mest lesið „Þú ert bara að niðurlægja þinn eigin leikmann“ Fótbolti Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Fótbolti Myrti kærustuna og spurði svo ChatGPT hvað hann ætti að gera Sport „Innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja“ Golf Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Handbolti Gunnar Nelson með augun á bardaga í ár Sport „Sorgmæddur en stoltur“ Fótbolti Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Körfubolti Sjáðu markið sem felldi Liverpool, drama í Newcastle og tvær markaveislur Fótbolti Björgvin ekki af baki dottinn: „Bara eins lengi og mín er þörf“ Handbolti Fleiri fréttir Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Kristrún Ríkey í óvænt flug til Serbíu NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Uppgjörið: Valur - KR 92-90 | Valsmenn unnu eftir framlengingu Góður leikur Elvars dugði ekki til Handtekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ „Stigin fyrir sigurinn það mikilvægasta“ „Hann er rosalegur“ ÍR - ÍA 86-83 | Falldraugurinn vofir yfir Skagamönnum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Þjálfari Almars lofar að mæta á sundskýlu ef þeir vinna Dómari sleginn niður í kvennaleik Elvar en ekki Friðriksson Líkir íslenska körfuboltalandsliðinu við Atlanta Hawks „Þeir geta klárað þetta án mín“ Tekur tólf leikmenn með til Serbíu Sjá meira