Þessi hringur skiptir hann meira máli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2016 11:00 Tyronn Lue með þeim LeBron James, Kyrie Irving og Kevin Love. Vísir/Getty
Tyronn Lue gerði Cleveland Cavaliers að NBA-meisturum á sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari í NBA og hringurinn sem hann fær afhentan í nótt skiptir hann miklu máli. Það verður mikið um dýrðir í Quicken Loans höllinni í kvöld þegar NBA-deildin í körfubolta fer aftur af stað. Leikmenn og þjálfarar Cleveland Cavaliers fá meistarahringinn afhentan fyrir opnunarleik NBA-deildarinnar á milli Cleveland Cavaliers og New York Knicks. Tyronn Lue tók við Cleveland-liðinu af David Blatt 22. janúar 2016 og undir hans stjórn varð liðið NBA-meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins. Tyronn Lue vann sjálfur tvo meistaratitla sem leikmaður Los Angeles Lakers 2000 og 2001. Hann yfirgaf Lakers í kjölfarið og vann ekki titilinn með þeim sex NBA-félögum sem hann spilaði með eftir það. Tyronn Lue er ekki í vafa um hvaða hringur mun skipta hann mestu máli. Það er NBA-hringurinn sem hann fær afhentan í kvöld. „Hann skiptir mig meira máli vegna alls þessa sem ég þurfti að ganga í gegnum. Þegar ég vann titlana með Lakers þá bjuggust allir við að við yrðum meistarar,“ sagði Tyronn Lue. „Núna var okkur ekki spáð titlinum og við lentum líka 3-1 undir. Við þurftum líka að komast í gegnum ýmislegt á tímabilinu sjálfu. Þess vegna skiptir þessi titill mig meira máli en hinir tveir,“ sagði Tyronn Lue. Cleveland Cavaliers vann 27 af 41 deildarleik undir hans stjórn í fyrra (66 prósent) en 16 af 21 leik í úrslitakeppninni (76 prósent).
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira