Grótta vann langþráðan sigur | Stjarnan heldur í við Fram Kristinn Páll Teitsson skrifar 5. nóvember 2016 17:43 Allt annað er að sjá til Gróttu með Önnu innanborðs. vísir/vísir
Íslandsmeistararnir í Gróttu unnu fyrsta sigur sinn í tæpa tvo mánuði á heimavelli í dag gegn ÍBV en leiknum lauk með 25-20 sigri Seltirninga. Fyrri leik liðanna lauk með níu marka sigri Eyjakvenna en Grótta hafði ekki unnið leik frá annarri umferð. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir lék annan leik sinn í röð í Gróttutreyjunni og með hana innanborðs var allt annað að sjá Seltirninga. Grótta leiddi 12-10 í hálfleik og vann að lokum fimm marka sigur en Lovísa Thompson var atkvæðamest með átta mörk og bætti Laufey Ásta Guðmundsdóttir við sjö mörkum. Í liði ÍBV var það Sandra Erlingsdóttir sem var markahæst með sjö mörk en Ester Óskarsdóttir kom næst með sex. Í Hafnarfirði sóttu Garðbæingar tvö stig til Hauka en leiknum lauk með sex marka sigri Stjörnunnar, 28-22. Jafnræði var með liðunum framan af en eftir því sem leið á hálfleikinn náðu gestirnir úr Garðabænum betri tökum á leiknum. Leiddu þær 16-12 í hálfleik en þær hleyptu forskotinu aldrei frá sér í seinni hálfleik og fögnuðu að lokum sannfærandi sigri. Með sigrinum heldur Stjarnan í við topplið Fram en Haukar sitja áfram í þriðja sæti, fjórum stigum á eftir Fram.
Olís-deild kvenna Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira