Hundruð flóttamanna drukknuðu í vikunni Guðsteinn Bjarnason skrifar 4. nóvember 2016 07:00 Skelfing braust út þegar hópur fólks féll í hafið þegar verið var að bjarga þeim um borð í björgunarbjörgunarskip út af ströndum Líbíu. vísir/epa
Talið er að um 240 flóttamenn hafi drukknað í Miðjarðarhafi í gær og fyrradag út af ströndum Líbíu. Fólkið er sagt hafa verið um borð í tveimur bátum sem báðum hvolfdi. Fréttir af þessu bárust með öðru flóttafólki sem bjargað var úr hafinu og var flutt til ítölsku eyjunnar Lampedusa. Um hundrað þeirra drukknuðu á miðvikudag þegar upplásinn gúmmíbátur sökk. Annar gúmmíbátur fórst síðan í gærmorgun og þar er talið að um 140 manns hafi látið lífið. Af fyrri bátnum björguðust 29 manns en aðeins tveir lifðu af seinna slysið, svo vitað sé. Alls hafa þá meira en 4.200 drukknað í Miðjarðarhafi það sem af er þessu ári í tilraun til að komast yfir til aðildarríkja Evrópusambandsins, ýmist frá Tyrklandi eða frá norðurströnd Afríku. Á síðasta ári er talið að nærri 3.800 hafi drukknað þar í hafinu en árið 2014 voru það nærri 3.300 manns. Hernaðaraðgerðir Evrópusambandsins gegn smyglurum, sem reyna að koma fólki ólöglega yfir hafið, hafa orðið til þess að mennirnir eru að mestu hættir að senda fólk með trébátum út á Miðjarðarhaf. Í staðinn er nánast eingöngu notast við uppblásna gúmmíbáta sem eru enn hættulegri farartæki. Yfirleitt fylgir enginn flóttafólkinu þannig að það þarf sjálft að sjá um að stýra bátunum yfir hafið. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Flóttamenn Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira