Kim og Kanye munu eyða þakkagjörðarhátíðinni á spítalanum Ritstjórn skrifar 24. nóvember 2016 11:15 Kanye og Kim ásamt North, dóttur þeirra sem er þriggja ára gömul. vísir/getty
Þakkagjörðarhátíðin er haldin í Bandaríkjunum í dag en það er stærsti hátíðardagur ársins þar í landi. Þá koma fjölskyldur og vinir saman og borða veislumat, oftast kalkún. Þessi þakkagjörðarhátíð verður þó aðeins öðruvísi á Kardashian-West heimilinu þar sem Kanye hefur verið lagður inn á spítala. Hann mun dvelja þar næstu dagana. Rapparinn var lagður inn í byrjun vikunnar, skömmu eftir að hann tilkynnti ekkert yrði af restinni af tónleikaferðalaginu hans. Talið er að hann hafi verið lagður inn fyrir ofþreytu og næringaskorti en hann hefur verið undir miklu álagi seinustu mánuði, ekki aðeins vegna tónleikaferðalagsins heldur einnig vegna fatalínunnar sinnar með Adidas sem og að ráðist var á eiginkonu hans í París í byrjun október. Kim flaug frá New York um leið og hún frétti af innlögninni til þess að vera við hlið eiginmanns síns. Ekki er vitað hversu lengi Kanye verður á spítalanum en ljóst er að honum verði ekki sleppt strax og því þurfa þau að eyða þakkagjörðinni þar í ár.
Mest lesið Heitustu förðunartrendin á tískuvikunni í New York Glamour Vivienne Westwood var fyrirsæta í sinni eigin sýningu Glamour NYX Professional býður í afmæli Glamour Emanuele Farneti verður ritstjóri ítalska Vogue Glamour Lorde á forsíðu Vogue Glamour Grár varalitur Gigi Hadid Glamour Adidas, Burberry og pólitísk skilaboð fyrir unga fólkið Glamour Fyrstu Chanel úrin fyrir karlmenn Glamour Kylie Jenner opnar snyrtivöruverslun Glamour Gucci tekur yfir götutískuna Glamour