Fimmta þrenna Westbrooks í röð | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. desember 2016 07:54 Westbrook ræðst á körfu New Orleans. vísir/afp
Fjórir leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Russell Westbrook var með þrefalda tvennu fimmta leikinn í röð þegar Oklahoma City Thunder bar sigurorð af New Orleans Pelicans á heimavelli, 101-92. Westbrook skoraði 28 stig, tók 17 fráköst og gaf 12 stoðsendingar í liði Oklahoma sem er í 5. sæti Vesturdeildarinnar. Þetta var fimmti sigur liðsins í röð. Anthony Davis var að vanda yfirburðarmaður í liði New Orleans en hann skoraði 37 stig, tók 15 fráköst og varði fjögur skot. Davis er stigahæstur í deildinni með 31,5 stig að meðaltali í leik. Eftir frábæra byrjun hefur fjarað undan Los Angeles Clippers að undanförnu. Í nótt laut liðið í lægra haldi fyrir Indiana Pacers á heimavelli, 102-111. Sjö leikmenn Indiana skoruðu 12 stig eða meira í leiknum. Thaddeus Young var þeirra stigahæstur með 17 stig. Indiana er í 9. sæti Austurdeildarinnar. Þrátt fyrir tapið átti Blake Griffin flottan leik í liði Clippers; skoraði 24 stig, tók 16 fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Þrjátíuogsex stig DeMarcus Cousins dugðu Sacramento Kings ekki til sigurs gegn New York Knicks á útivelli. Lokatölur 106-98. Þetta var þriðji sigur Knicks í röð. Carmelo Anthony og Derrick Rose skoruðu báðir 20 stig fyrir Knicks og Brandon Jennings skilaði 19 stigum af bekknum. Þá vann Orlando Magic góðan sigur á Detroit Pistons, 92-98. Liðsheildin var sterk hjá Orlando sem fékk alls 45 stig af bekknum í leiknum. Serge Ibaka var stigahæstur í liði Orlando með 21 stig. Marcus Morris skoraði 21 stig fyrir Detroit sem tapaði aðeins sínum þriðja heimaleik í nótt.Úrslitin í nótt: Oklahoma 101-92 New Orleans LA Clippers 102-111 Indiana NY Knicks 106-98 Sacramento Detroit 92-98 OrlandoWestbrook var magnaður DeAndre Jordan með rosalegt varið skot Flottustu tilþrif næturinnar
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira