Það var Anderson Cooper sem afhenti Madonnu verðlaunin sem var hrærð yfir verðlaununum og táraðist sjálft er hún hélt 10 mínútna hjartnæma ræðu sem hófst á þessum orðin.
„Takk fyrir að viðurkenna hæfileika mína sem hafa gert mér kleift að viðhalda tónlistarferli mínum síðastliðin 34 ár, þrátt fyrir blygðunarlaust kynjamisrétti, stöðugt einelti og misnotkun. Þegar ég byrjaði í þessum bransa var ekkert internet svo fólk varð að segja hlutina við mig í eigin persónu, og í örfá skipti svaraði ég fyrir mig því lífið var einfaldara þá."
Meðal þess sem hún fór líka yfir var þegar henni var nauðgað í upphafi feril síns og hvernig hún hefur alltaf mátt sæta mikilli gagnrýni fyrir það eitt að fara ekki leynt með kynvitund sína á sviði.
Áhorfendur risu á fætur í lokinn og flestir með tárvot augu - við mælum með að horfa á þessa ræðu hér neðar í fréttinni frá hinni einu sönnu poppdrottningu!

