Samsung Electronics reynir nú að komast að samkomulagi við LG Chem, dótturfélag LG Electronics, um að fá að nota rafhlöður síðarnefnds fyrirtækis í snjallsíma sína. Frá þessu er greint í Chosun Ilbo, einu stærsta dagblaði Suður-Kóreu. Með þessu er Samsung sagt vilja koma í veg fyrir galla líkt og komu upp í farsímanum Galaxy Note 7 sem átti það til að springa vegna rafhlöðugalla.
Til þessa hafa rafhlöður í Note-símum Samsung komið frá bæði dótturfélaginu Samsung SDI og hinu kínverska Amperex Technology.
Chosun Ilbo vitnaði í heimildarmann sem sagði meira en níutíu prósent líkur á að fyrirtækin komist að samkomulagi og Samsung muni nota rafhlöður LG Chem frá og með miðju næsta ári.
Hvorki talsmenn Samsung né LG Chem vildu tjá sig um samkomulagið þegar Chosun Ilbo innti þá eftir svörum.
Þess er skemmst að minnast að Samsung innkallaði tvær og hálfa milljón Galaxy Note 7 síma snemma í september þessa árs. Var það gert vegna áðurnefnds rafhlöðugalla í rafhlöðu frá Samsung SDI.
Í október hætti Samsung öllum stuðningi við notendur Galaxy Note 7 en þá hafði fyrirtækið reynt að laga gallann með því að skipta út rafhlöðunni fyrir rafhlöðu frá Amperex Technology. Í henni kviknaði einnig.
LG Chem framleiðir nú rafhlöður fyrir LG Electronics og Apple.
Samsung vill nota rafhlöður frá LG

Tengdar fréttir

Samsung hættir sölu Galaxy Note 7
Hlutabréf tæknifyrirtækisins lækka verulega í verði.

Samsung lofar því að Galaxy S7 muni ekki springa
Bilanir í fyrrnefndum Note 7 urðu til mikils tekjutaps Samsung.