Katrín skoðaði 17 tveggja akreina hringtorg sem eru í grennd við og innan höfuðborgarsvæðisins. Alls urðu 457 slys í hringtorgunum og í 102 tilvikum kom erlendur ökumaður við sögu. Á sama tímabili komu erlendir ökumenn við sögu í 16 prósent umferðarslysa.
Hættulegustu hringtorgin eru á Reykjanesbraut við Hlíðartorg og við Kaplakrika en á báðum hringtorgum urðu yfir 80 slys. Erlendir ökumenn lenda þar einnig oftast í árekstrum. Líklegast er að erlendir ökumenn lendi í slysi við hringtorg við Breiðumörk og Þorlákshafnarveg en 67 prósent slysa þar eru vegna erlendra ökumanna. Hringtorgið við Þingvallaveg er þar skammt á eftir með 64 prósent tilfella.

Athygli vekur að í umferðarlögum er ekki að finna sérstök ákvæði um akstur í hringtorgum, fyrir utan að bannað er að leggja í þeim. Hér á landi er farið eftir yfirborðsmerkingum og hefð.
„Þessi skýrsla er liður í því að átta okkur á hvernig umferðarmenningin er. Við höfum verulegar áhyggjur af umferðaröryggi og erum búin að hafa þær mjög lengi vegna ferðamanna,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.
„Íslendingar nota hringtorg öðruvísi en annars staðar er gert í heiminum og það skapar vandamál. Þessi regla um innri akrein er bara hefð og það þyrfti því að breyta allri umferðarmenningu landsins til að bregðast við þessum tíðindum. En að öðru leyti eru hringtorg mjög góð fyrir umferðaröryggi,“ segir G. Pétur.
Mismunandi er eftir löndum hvaða reglur gilda um akstur í hringtorgum og því benda niðurstöður rannsóknarinnar til þess að erlendir ferðamenn þekki ekki þær reglur sem gilda um akstur í tveggja akreina hringtorgum hér á landi. Sjö bílaleigur svöruðu spurningum um upplifun ferðamanna af hringtorgum og voru svörin jafn misjöfn og þau voru mörg. Yfirleitt var þó talað um að það kæmi erlendum ferðamönnum oft á óvart að innri akrein hringtorgs væri í forgangi þegar ekið væri út úr því þar sem aðrar reglur giltu í heimalandi þeirra.
Aðeins tvær af fjórum bílatjónadeildum tryggingafyrirtækjanna tóku þátt í rannsókninni. Bæði fyrirtækin sögðu að margir ferðamenn yrðu steinhissa þegar þeir heyrðu um það að umferð á innri akrein hringtorga ætti forgang.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu