Sá sem notar eina dós á viku getur sparað 160 þúsund á ári með því að hætta Birgir Olgeirsson skrifar 4. janúar 2017 13:55 Verð á íslensku neftóbaki hækkaði um 60% um áramótin. Munar 46 þúsund krónum árlega fyrir þann sem notar eina dós á viku. Mynd/Vísir
Þeir sem nota eina dós af íslensku neftóbaki á viku munu spara sér 156 þúsund krónur á ári með því að hætta. Líkt og Vísir greindi frá í gær hækkaði íslenskt neftóbak um 60 prósent í verði um áramótin. Þessi hækkun var ákveðin af Alþingi í fjárlagafrumvarpinu en Áfengis og tóbaksverslunin skaffar verslunum neftóbakið. Fyrir áramót seldi ÁTVR verslunum 20 neftóbaksdósir saman á 29.260 krónur en 1. janúar fór verðið á þessum 20 dósum í 47.053 krónur. Hækkaði verðið því um 17.700 krónur á þessar 20 dósir, en rétt er að geta þess að um er að ræða heildsöluverð. Dósin úr ÁTVR kostaði því 1.463 krónur fyrir hækkunina en 1. janúar fór hún í 2.352 krónur, sem er hækkun upp á 890 krónur. Dósin er því seld á um 3.000 krónur úr verslunum miðað við könnun Vísis. Það þýðir að sá sem kaupir sér eina dós á viku mun þurfa að reiða fram 156 þúsund krónur á ári fyrir neysluna. Má ætla að þessi hækkun muni kosta þann sem kaupir eina dós á viku 46.280 krónur meira á ári.Fagnar hækkuninni eindregiðViðar Jensson, hjá Embætti landlæknis.Vísir/Stefán„Ég fagna þessari hækkun eindregið,“ segir Viðar Jensson, verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Embætti landlæknis. Einhverjar raddir hafa heyrst þess efnis að svona mikil hækkun á verði á íslensku neftóbaki muni leiða til þess að þeir sem það nota snúi sér einfaldlega að sígarettum. Einhverjir hafa notað neftóbakið til að hætta að reykja og aðrir hafa litið á neftóbakið sem ódýrari kost. Viðar deilir ekki þeim áhyggjum að þessi hækkun á neftóbaki verði til þess að þeir sem það nota snúi sér að sígarettum. „Ég haf kannað þetta töluvert og stærsti hlutinn af þessari neyslu eru ungir karlmenn, 18 til 24 ára. Þetta virðist vera að stærstum hluta viðbótarneysla. Það er að segja, strákarnir reykja í svipuðu hlutfalli og stelpurnar en bæta þessu við sig,“ segir Viðar. Hann nefnir að gert var staðreyndablað um sænskt snus af stofnun í Heidelberg í Þýskalandi þar sem kom fram að snusið sé að stærstum hluta viðbótarneysla. „Það passar ágætlega við okkar tölur. Þannig að reykingar eru sem betur fer að dragast saman í öllum aldurshópum, út um allt land, hjá báðum kynjum og í öllum þjóðfélagshópum,“ segir Viðar. Hann segir það dýrt að reykja að það sé ekki ódýrari valkostur fyrir neytendur neftóbaks. „Því dósin endist mun meira þannig að ég óttast það ekki að þessir ungu strákar fari að reykja í staðinn.“Neysla á íslensku neftóbaki er mest hjá ungum karlmönnum, 18 til 24 ára.vísir/gvaVonar að hækkunin slái á neyslu Hann segist vona að þessi hækkun muni slá á þá miklu aukningu sem hefur verið undanfarin ár. „Við sáum það áramótin 2012 - 2013 var tóbaksgjaldið hækkað um helming á neftóbakinu og það sló verulega á eftirspurnina þá. Þau áhrif hafa dvínað en ég er að vona að við fáum þetta út úr hækkuninni að eftirspurnin eigi eftir að minnka,“ segir Viðar. Árið 2012 var framkvæmd stór könnun til að fá heildarmynd af neftóbaks/munntóbaksneyslu. Niðurstaðan varð sú að neftóbaksneysla sem neftóbaks var einungis 20 til 30 prósent af þessari framleiðslu. „Þá sáum við að yngsti hópurinn, 18 til 24 ára, neytti tóbaks í vör daglega um 15 prósent. Þremur árum seinna, 2015, endurtókum við þessa könnun með stærra úrtaki karlmanna þannig að hún yrði marktæk niður á aldurshópa. Þá hafði enn bætt í. Þá hafði talan fyrir þennan aldurshóp, 18 til 24 ára, aukist úr 15 í 23 prósent sem notuðu tóbak í vör daglega.“ Hann segir það jákvæða sem kom út úr þessari könnun árið 2015 hafa verið að dregið hafði úr aldurshópnum 25 ára til 34 ára.Sérstaklega mikil áhrif á ungt fólk Hann segist fullviss um að svona verðhækkun muni draga úr neyslu. „Svona verðhækkun hefur sérstaklega mikil áhrif á ungt fólk. Það hefur sýnt sig eins og þessi hækkun áramótin 2012 til 2013,“ segir Viðar. Nýjar neyslutölur verða því til staðar á næsta ári og segir Viðar landlæknisembættið eiga eftir að fylgjast grannt með gangi mála. Hér fyrir neðan má sjá hversu mikið hefur selst af íslensku neftóbaki í kílóum talið frá árinu 2000 til 2016:
Tengdar fréttir Íslenskt neftóbak hækkaði um 60 prósent í verði um áramótin Dósin fæst nú á rúmar 3.000 krónur í verslunum Hagkaupa. 3. janúar 2017 13:58 40 tonn seld af neftóbaki í ár Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins leggur til að tóbaksgjald hækki um allt að 69 prósent á hvert gramm tóbaks. 21. desember 2016 07:45 Vill ekki leyfa innflutning á sænsku munntóbaki: „Betur sett án þess“ Verkefnisstjóri tóbaksvarna sér ekki ástæðu til að sækjast eftir undanþágu frá innflutningsbanni 2. febrúar 2015 21:51 Jón Gnarr krefst rannsóknar á neftóbaki Ungir karlmenn troða tóbaki í vörina í tonnavís og eru með efnið í munni allt uppí 23 tíma á sólarhring. 7. janúar 2015 12:00 Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt Erlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Innlent Fleiri fréttir Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Sjá meira
Íslenskt neftóbak hækkaði um 60 prósent í verði um áramótin Dósin fæst nú á rúmar 3.000 krónur í verslunum Hagkaupa. 3. janúar 2017 13:58
40 tonn seld af neftóbaki í ár Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins leggur til að tóbaksgjald hækki um allt að 69 prósent á hvert gramm tóbaks. 21. desember 2016 07:45
Vill ekki leyfa innflutning á sænsku munntóbaki: „Betur sett án þess“ Verkefnisstjóri tóbaksvarna sér ekki ástæðu til að sækjast eftir undanþágu frá innflutningsbanni 2. febrúar 2015 21:51
Jón Gnarr krefst rannsóknar á neftóbaki Ungir karlmenn troða tóbaki í vörina í tonnavís og eru með efnið í munni allt uppí 23 tíma á sólarhring. 7. janúar 2015 12:00