Solange Knowles í forsíðuviðtali eftir Beyoncé Ritstjórn skrifar 11. janúar 2017 11:15 Solange er algjör stjarna á forsíðunni. Mynd/Interview
Beyoncé tók forsíðuviðtal við Solange, litlu systur sína, fyrir tímaritið Interview. Þar röbbuðu systurnar um margt eins og hvernig það er að vera kona, að alast upp í Houston í Texas, um nýjustu plötuna sína og margt annað afar áhugavert. Meðal annars sem kemur fram í viðtalinu er að Beyoncé var ávallt viss um að litla systir sín mundi verða stórstjarna. Frá því að þær voru ungar hefur Beyoncé verið stærsti aðdáandi systur sinnar og hvatt hana áfram að eltast við það sem hún elskar að gera, semja tónlist. Á móti segir Solange einnig að hún hafi alltaf litið upp til Beyoncé og að hún hafi alltaf verið þolinmóð og elskuleg við sig. Uppeldið í Houston hefur veitt þeim báðum mikinn innblástur. Þar sé að finna brot af flestum menningarheimum. Fólkið þar hafi verið vinalegt og ávallt hjálpað manni þegar það vantaði. Viðtalið má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Givenchy gefur út línu af barnafötum Glamour Óskiljanleg tískustefna Kim Kardashian Glamour Íris Björk og Chris Pine saman á rauða dreglinum Glamour Kylie litar sig aftur dökkhærða Glamour Harper Beckham hannar sína fyrstu flík aðeins 4 ára gömul Glamour Þetta eru fyrirsæturnar sem ganga í Victorias Secret tískusýningunni Glamour Drottning rauða dregilsins fagnar 70 ára afmæli í dag Glamour Þúsundir biðu eftir að sjá Kylie Jenner í New York Glamour Kendall Jenner er nýtt andlit Mango Glamour „Það er til ógrynni af hæfileikalausum listamönnum sem verða til með þessu internetlýðræði“ Glamour