Spennandi tímar fram undan 31. janúar 2017 16:00 Framtíðarhúsnæði Volvo atvinnutækja að Hádegismóum 8.
Starfsfólk Volvo atvinnutækja | Brimborg á spennandi ár í vændum en starfsemin flytur í nýtt húsnæði síðar á árinu. Síðasta ár var það stærsta hjá fyrirtækinu í mörg ár og gert er ráð fyrir að 2017 verði jafnvel stærra þegar kemur að sölu og nýskráningu á atvinnutækjum. Árið 2016 var það stærsta hjá Volvo atvinnutækjum | Brimborg hingað til að sögn Kristins Más Emilssonar, framkvæmdastjóra atvinnutækjasviðs. Brimborg tók við Volvo umboðinu árið 1988 og hefur því verið með Volvo atvinnutæki í þjónustu og sölu í hart nær þrjátíu ár.Hluti af starfsmönnum Volvo atvinnutækja inni á verkstæði. MYND/ANTON BRINK„Síðasta ár var mjög gott, það langbesta þegar litið er nokkur ár aftur í tímann. Markaðurinn er að færast í eðlilegt horf hvað varðar nýskráningartölur í vörubifreiðum og vinnuvélum en við vorum með allt að 27 prósenta markaðshlutdeild í vörubifreiðum yfir tíu tonn að þyngd á síðasta ári og gerum ráð fyrir að árið 2017 verði betra en síðasta ár þegar kemur að nýskráningum á atvinnutækjum. Í vinnuvélum varð salan töluvert meiri heldur en við höfðum gert ráð fyrir á síðasta ári. Frá árinu 2012 hafa verið nýskráðar 23 Volvo hópferðabifreiðar og í dag eigum við til tvær nýjar Volvo rútur og eina notaða á lager. Volvo hópferðabifreiðarnar eru orðnar vel sýnilegar á markaðnum. Auk þess gekk sala á Volvo Penta bátavélum vel á síðasta ári,“ segir Kristinn Már.Áralöng reynsla starfsfólks Volvo atvinnutækjasvið | Brimborg er þjónustufyrirtæki sem leitast við að þjónusta viðskiptavini sem allra best hverju sinni. Ætíð er leitast við að finna bestu lausnina þegar kemur að útfærslu þeirra atvinnutækja sem viðskiptavinir eru að velta fyrir sér. „Starfsfólk okkar hefur áralanga reynslu í útfærslu á þeim atvinnutækjum sem við getum boðið upp á hverju sinni. Varahlutaþjónusta hjá okkar birgjum í Volvo atvinnutækjum er framúrskarandi, ef varahlutir eru ekki til hjá okkur þá nánast undantekningarlaust skila þeir sér erlendis frá daginn eftir, ef pöntun fer fram fyrir hádegi deginum áður. Verkstæðin hjá okkur eru tvískipt, annars vegar eru þjónustaðar Volvo vörubifreiðar og rútur og hins vegar Volvo vinnuvélar og Volvo Penta bátavélar. Tækninni fleygir fram og við vinnum stöðugt að því að mennta okkar starfsfólk á öllum sviðum.“Starfsmenn söludeildar Volvo atvinnutækja.Nýtt húsnæði að Hádegismóum Árið 2017 verður án efa spennandi ár fyrir starfsfólk Volvo atvinnutækja | Brimborg en stefnt er að flutningi í nýtt húsnæði að Hádegismóum 8 sem verður sérhannað utan um starfsemina, í lok þessa árs. Samhliða er verið að fjölga starfsfólki í öllum deildum. „Hönnun hússins er búin að taka langan tíma hér innandyra með fagfólki og starfsmönnum sem hafa komið að hönnuninni. Þar verður eitt allra glæsilegasta og best útbúna verkstæði landsins fyrir þau atvinnutæki sem við erum að þjónusta. Við komum til með bjóða upp á hraðþjónustu við atvinnutæki, smurþjónustu, dekkjaþjónustu og bremsuviðgerðir ásamt öðrum smærri viðgerðum. Frumherji kemur til með að vera með sérhæfða skoðunarstöð fyrir stærri atvinnutæki í austurenda byggingarinnar. Aðstaða og aðbúnaður fyrir starfsmenn og okkar viðskiptavini verður með því besta sem gerist í dag,“ segir Kristinn Már og nefnir einnig að staðsetningin að Hádegismóum sé frábær í útjaðri Reykjavíkur og aðkoma frá stofnbraut fyrir stærri tæki eins og best verður á kosið, auk þess sem staðsetningin er í leiðinni fyrir marga af viðskiptavinum fyrirtækisins á leið þeirra út úr Reykjavík.Nánari upplýsingar Söludeild atvinnutækja er staðsett ásamt sölu varahluta í húsnæði á bak við aðalbyggingu að Bíldshöfða 6. Volvo atvinnutækjasvið er með fjórar heimasíður en þar er hægt að nálgast upplýsingar um vörur og þjónustu ásamt fréttum af því sem er í gangi hverju sinni. www.volvotrucks.is www.volvoce.is www.volvobus.is og www.volvopenta.is. Hægt er að fylgjast með Volvo atvinnutæki – Brimborg á Facebook.Volvo L150H hjólaskófla sem Malbikunarstöðin Hlaðbær Colas fær afhenta á næstu dögum.Glæsilegar Volvo 9500 og Volvo 9900 hópferðabifreiðar til á lager að Bíldshöfða 6.
Mest lesið Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Viðskipti innlent Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Samstarf John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Atvinnulíf Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Viðskipti innlent Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Fleiri fréttir Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Alvöru þægindi eftir átján holur Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Land Rover veisla á laugardaginn Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Greiðsluáskorun „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Hvenær getur þú hætt að vinna? Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Sjá meira