Kynntu til leiks körfuboltagoðsögn í teymið - Myndband
Stefán Árni Pálsson skrifar
Þennan þekkja eflaust margir.
Í Dominos-körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport mátti sjá nýjan sérfræðing í settinu. Eins og vanalega var Kristinn Friðriksson á sínum stað en með honum var Njarðvíkingurinn og goðsögnin Teitur Örlygsson.
Drengirnir í Körfuboltakvöldinu settu saman ákveðin heiðursmyndband fyrir Teit en hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna hér á landi, og það oft.