Magic Johnson vill hjálp frá Kobe fái hann að taka til hjá Lakers Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. febrúar 2017 09:45 Magic Johnson og Kobe Bryant. Vísir/AFP
Magic Johnson er kominn aftur til Los Angeles Lakers en Jeanie Buss, forseti Lakers og meðeigandi, réði hann sem sérstakan ráðgjafa sinn fyrr í þessum mánuði. Magic Johnson kom í viðtal til Stephen A. Smith í First Take á ESPN og þar fór hann ekkert í felur með það að hann sækist eftir þjónustu Kobe Bryant við að búa til framtíðarlið hjá Los Angeles Lakers. ESPN segir frá. „Fyrsta símtalið mitt? Kobe Bryant,“ svaraði Magic Johnson og bætti við: „Ég myndi hringja í Kobe því hann skilur hvað þarf til að vinna. Hann skilur líka þessa leikmenn. Ég myndi hringja í hann og spyrja: Hvaða hlutverk viltu fá? Ef þú getur bara gefið mér einn dag þá þigg ég hann,“ sagði Magic. „Ég tek við hverju sem hann getur gefið mér. Ég vil hann komi og taki þátt í þessu,“ sagði Magic. Magic Johnson varð fimm sinnum NBA-meistari með Los Angeles Lakers (1980, 1982, 1985, 1987, 1988) á sínum tíma og Kobe Bryant lék það eftir og vann fimm meistaratitla líka með Lakers (2000, 2001, 2002, 2009, 2010). Saman hafa þeir því tekið þátt í síðustu tíu meistaratitlum félagsins eða öllum titlum Lakers frá árinu 1973. Magic Johnson hefur sóst eftir meiri ábyrgð hjá Los Angeles Lakers. Hann vill taka stóru ákvarðanirnar en vill jafnframt að menn í ráðandi stöðum vinni saman. „Allir þurfa að vera á sömu blaðsíðu núna. Við þurfum ekki bara að hugsa um hvað er rétt í dag heldur hvað það þýðir fyrir framtíð Lakers. Það þurfa allir að gera sér grein fyrir,“ sagði Magic Johnson.
NBA Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Sjáðu þáttinn um N1 mótið: Sprungnar vindsængur, lukkuljón og Ronaldo hárgreiðsla Fótbolti Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf Liverpool leggur númerið hans Jota á hilluna að eilífu Fótbolti Tók fjóra daga þegar hún var tíu ára en getur nú unnið fimmta árið í röð Sport Fleiri fréttir Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Sjá meira