Strákarnir falla um þrjú sæti en eru enn þá langbestir á Norðurlöndum Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. mars 2017 10:47 Enn á toppnum í norðrinu. vísir/getty
Íslenska landsliðið í fótbolta er í 23. sæti á nýjum styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins sem kom út í morgun. Það fellur um þrjú sæti frá síðasta lista en það var met hjá liðinu þegar það komst í 20. sæti listans. Ísland missir nýkrýnda Afríkumeistara Egyptalands upp fyrir sig sem fara upp um þrjú sæti og þá er Holland komið aftur upp fyrir íslenska liðið. Ekvador er sæti fyrir ofan strákana okkar og Írland, sem Ísland mætir síðar í mánuðinum, er sæti neðar. Sem fyrr eru strákarnir okkar langbesta lið Norðurlanda en næsta þjóð á eftir Íslandi er Svíþjóð sem er 22 sætum fyrir neðan íslenska liðið í 45. sæti listans. Danir eru svo í 48. sæti. Lars Lagerbäck hefur verk að vinna með norska landsliðið en það stendur í stað í 81. sæti, einu sæti á undan Færeyjum. Finnar eru slakastir á Norðurlöndum en þeir sitja í 99. sæti heimslistans. Engin breyting er á tólf efstu sætunum og halda Argentínumenn því efsta sæti listans á undan Brasilíu, Þýskalandi, Síle og Belgíu.Allan listann má sjá hér.
Íslenski boltinn Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Fleiri fréttir „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Sjá meira