Marsspá Siggu Kling – Vatnsberi: Þú ert svo tilfinningamikill og átt það til að vera yfirdrifinn 3. mars 2017 09:00
Elsku hjartans vatnsberinn minn, það er að koma eitthvað svo friðsöm, jákvæð, uppbyggileg og himintær orka inn í þetta merki. Smátt og smátt hefur verið að byggjast upp mikil orka sem veitir ykkur styrk. Það er ekki eins og þið séuð að fara inn á mikið breytingatímabil, nema það sé eitthvað sem þið eruð búin að ákveða og hugsa um að framkvæma. Andlega verðið þið sterkari og sterkari og á því byggist lífið, það eina sem hefur hindrað þig undanfarið. Hvort sem það er í sambandi, vinnu eða lífinu hreinlega er kvíði yfir hinum veraldlegur gæðum sem þér finnst þú þurfa að uppfylla. Ef engar áhyggjur væru tengdar hinu veraldlega þá er ég sannfærð um að þú getur sagt ég er hamingjusamur vatnsberi. Að sjálfsögðu gerir þú of miklar kröfur til þín og það er bara allt í lagi ef að þú leyfir þér líka að fagna þeim sigrum sem þú ert sífellt að ná. Þú ert svo tilfinningamikill og átt það til að vera yfirdrifinn sem er svo dásamlega skemmtilegt, en líka í senn svo ofboðslega tilfinningasamur að ungfrú drama getur átt það til að eiga heima í stofunni hjá þér. Það er náttúrulega mjög óvanalegt hjá vatnsbera en svona er þetta. Þú skalt ekki halda að þú verðir út undan í þessu stórskemmtilega lottói sem að lífið er. Sigurstundin þín er nálægt, auðvitað er alltaf einn og einn sem vill blekkja dásamlega vatnsberann. Það vilja allir hafa þig með í viðskiptum eða verkefnum því að þú átt það til að vera svo hughrifinn sem gerir þig svo ofboðslega skemmtilegan og þess vegna ert þú manneskja númer eitt sem ert valin. Þú átt ekki eftir að láta blekkjast af hviklyndu tali því að það er í eðli þínu að lesa smáa letrið. Orkan sem er yfir þér núna og verður út vorið segir þér að fara út fyrir þægindarammann og henda þér út í djúpu laugina, sérstaklega ef þú hefur hug á því að afla þér meiri tekna og víkka út sjóndeildarhringinn þinn. Það er svo algengt að þú viljir læra allt og vita allt. Skilaboðin mín eru að eftir því sem þú lærir meira þá veistu minna. Því að réttu skilaboðin koma frá hjartanu eða sálinni en ef að þú ætlar að vera rökréttur eða reikna allt út þá líður þér illa. Mottó: Ég er minnar eigin gæfu smiðurFrægir Vatnsberar: Pacas hans Begga, Geir Sveinsson handknattleiksþjálfari, Halla himintungl, Clark Gable leikari, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi, Yoko Ono, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Katrín Jakobsdóttir þingkona, Hilmir Snær Guðnason leikari, Rikka sjónvarpskona, María Ólafsdóttir Júróvisjónstjarna, Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kastljóss, Gunna Dís útvarpskona, Höddi Magg, Andrea Róberts mannauður, Hilmar Hafsteinsson ofurfasteignasali, Rut Roberts flugfreyja hjá Icelandair, Ragnheidur Guðfinna sálfræðingur
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Sjá meira