Af hverju svona alvarlegur? Jókerinn kláraði febrúar með þriðju þrennunni Tómas Þór Þórðarson skrifar 1. mars 2017 16:00
Serbneski landsliðsmaðurinn Nikola Jokic, kallaður Jókerinn, heldur áfram að spila frábærlega fyrir Denver Nuggets í NBA-deildinni í körfubolta. Hann hefur vakið gríðarlega athygli fyrir frammistöðu sína á nýju ári. Jokic var allt í öllu hjá Denver í nótt þegar liðið pakkaði Chicago Bulls saman, 125-107, á útivelli en Serbinn skoraði 19 stig, tók 16 fráköst og gaf tíu stoðsendingar. Hann hitti úr öllum þremur þriggja stiga skotunum sínum og öllum fjórum vítaskotunum. Þetta er þriðja þrenna Jokic á árinu en allar komu þær í febrúar. Frá fyrsta degi ársins er hann með 22,7 stig, 11,0 fráköst og 5,5 stoðsendingar að meðaltali og í leikjunum er hann að hitta úr 59 prósent skota sinna utan af velli og 86 prósent vítanna. Í raun er Nikola Jokic aðeins einn af þremur leikmönnum NBA-deildarinnar sem eru með að minnsta kosti 20 stig, 10 fráköst og 5 stoðsendingar að meðaltali síðan 1. janúar. Hinir eru Russell Westbrook og DeMarcus Cousins. Febrúar hefur verið viðburðarríkur hjá Jokic. Hann náði sinni fyrstu þrennu 3. febrúar þegar hann var með 20 stig, 13 fráköst og 11 stoðsendingar á móti Milwaukee Bucks. Nikola Jokic er 208 sentímetrar á hæð og fæddur í febrúar 1995. Denver Nuggets valdi hann númer 41. í nýliðavalinu 2014 en hann kom ekki til liðsins fyrr en sumarið 2015. Þetta er því annað tímabil hans með Denver. Brot af því besta með Jokic frá því í nótt má sjá í spilaranum hér efst í fréttinni.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira