Tillerson segir að hernaðaraðgerðir gegn Norður-Kóreu komi til greina Atli Ísleifsson skrifar 17. mars 2017 10:10 Rex Tillerson er nú í Suður-Kóreu eftir heimsókn til Japans. Vísir/AFP
Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að hernaðaraðgerðir sé einn af þeim möguleikum sem komi til greina þegar kemur að hvernig skuli eiga við stjórnvöld í Norður-Kóreu. Tillerson greindi frá þessu í heimsókn sinni til Suður-Kóreu í dag. Ráðherrann sagði að núverandi stefna, þar sem viðskiptaþvingunum hafi verið beitt gegn ríkinu um langt skeið, hafi ekki skilað tilætluðum árangri. Bandaríkin væru því að leita nýrra leiða til að fá Norður-Kóreumenn til að hverfa frá kjarnorkuáætlun sinni. Tillerson varði jafnframt uppsetningu eldflaugavarnarkerfis Bandaríkjahers í Suður-Kóreu, sem kínversk stjórnvöld hafa harðlega gagnrýnt. Stjórnvöld í Suður-Kóreu og Bandaríkjunum segja kerfið nauðsynlegt til að verjast þeirri ógn sem stafar af norður-kóreskum stjórnvöldum. Tillerson mætti til Suður-Kóreu eftir heimsókn frá Japan þar sem hann sagði tuttugu ára tilraunir til að hafa áhrif á norður-kóresk stjórnvöld hafa mistekist. Aðspurður um hvort grípa þurfi til hernaðaraðgerða sagðist ráðherrann svo sannanlega vonast til að svo verði ekki. „En ef ógnin sem stafar af vopnaáætlun þeirra kemst á það stig sem við teljum að kerfjist aðgerða af okkar hálfu, þá er sá möguleiki uppi á borðum.“
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira