Bandarískt flugmóðurskip við strendur Kóreu Samúel Karl Ólason skrifar 14. mars 2017 17:54 USS Carl Vinson í Suður-Kínahafi. Vísir/AFP
Flugmóðurskipið USS Carl Vinson er nú statt við strendur Suður-Kóreu þar sem það tekur þátt í árlegum heræfingum Bandaríkjanna og Suður-Kóreu. Yfirvöld í Norður-Kóreu hóta miskunnarlausum árásum brjóti flugmóðurskipið gegn „fullveldi eða virðingu“ ríkisins. Þeir segja, eins og þeir gera á hverju ári, að heræfingarnar séu undirbúningur fyrir árásir á Norður-Kóreu og að koma flugmóðurskipsins sé hluti af þeirri „glæfralegu“ áætlun. Á opinberum fréttavef Norður-Kóreu, KCNA, segir að flugvélar af skipinu hafi æft árásir á her Norður-Kóreu. Mikil spenna er á Kóreuskaganum og í nærliggjandi ríkjum vegna kjarnorkuvopna- og eldflaugatilrauna Norður-Kóreu. Fyrr í mánuðinum skutu Norður-Kóreumenn fjórum eldflaugum að Japan. Þrjár af þeim lentu um 300 kílómetra frá ströndum Japan. Þar var ekki um tilraunaskot að ræða, heldur æfingu fyrir kjarnorkuárásir á herstöðvar Bandaríkjanna í Japan. Kínverjar hafa einnig mótmælt heræfingunum og segja að þær dragi ekki úr spennunni. Yfirvöld þar hafa bæði kallað eftir því að Norður-Kóreu hætti tilraunum sínum og að Bandaríkin og Suður-Kóreu hætti heræfingum.
Suður-Kínahaf Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi Sjá meira