Stolt af því að vera kvenfélagskona Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 13. mars 2017 20:30
Kvenfélög gegn mikilvægu hlutverki um allt land, ekki síst í sveitum þar sem félögin styrkja mikilvæg málefni og sjá um kaffiveitingar, eins og til dæmis í erfisdrykkjum og á fundum. Formaður kvenfélags Villingaholtshrepps sem fagnar nú hundrað ára afmæli segir mjög gefandi og skemmtilegt að vera í kvenfélagi. Hundraðasti aðalfundur kvenfélags Villingaholtshrepps var haldin í félagsheimilinu Þjórsárveri í Flóahreppi. Í félaginu eru 29 konur úr sveitinni og allir núlifandi formenn, sjö talsins mættu á fundinn. Konurnar voru myndaðar í bak og fyrir í tilefni af 100 ára afmælinu. „Það hefur gengið bara mjög vel. Þetta hefur verið mjög farsælt félag og mikið gefið af sér til samfélagsins. Margar konur hafa komið að og verið í þessu félagi,“ segir Sólveig Þórðardóttir, formaður Kvenfélags Villingaholtshrepps.Hvað gera kvenfélög eins og ykkar kvenfélag? „Við erum mikið í því að selja veitingar. Bæði eru það erfidrykkjur, sem er náttúrulega okkar stærsti hlutur í raun. Svo höldum við basar með hinum kvenfélögunum, við erum með Fjör í flóa, með heilmikla veitingasölu þar þannig að það eru svona stærstu póstarnir til að geta safnað fé til að geta gefið.“En þá er spurningin, er það lummó að vera í kvenfélagi í dag eða er það skemmtilegt og töff? „Mér finnst það rosalega flott og ég er rosalega stolt af því að vera kvenfélagskona og ég vona að hinar séu sammála því líka.“Af hverju er það svona flott? „Það bara gefur manni svo mikið. Það er svo gott þegar maður getur farið á stofnanir og gefið stórar og góðar gjafir sem fólk þarf á að halda en kannski ríkisvaldið sér ekki um að redda sem það ætti að gera. Manni líður þá svo vel.“Þannig að þetta er þakklátt starf? „Þetta er mjög þakkátt starf já, og bara gaman að vera saman.“
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira