Byltingarkennd nýjung 31. mars 2017 15:00 Malbikið fer beint í holuna. Mynd/Ernir
Fagverk verktakar ehf. hafa flutt inn nýjan malbikunarbíl sem notaður verður til holuviðgerða. Malbiksblöndu er dælt í holur með fjarstýrðum armi og sjálfur vörubíllinn er fjarstýrður líka. Nýi bíllinn er af gerðinni RC Sprider og er framleiddur í Svíþjóð. Þetta er fyrsti bíll sinnar tegundar sem fluttur er hingað til lands,“ segir Vilhjálmur Þ. Matthíasson, framkvæmdastjóri Fagverks, en Fagverk er verktakafyrirtæki sem býr yfir bæði tækjakosti og mannafla til að leysa öll malbikunarverkefni. Undanfarin þrjú ár hefur fyrirtækið séð um allar holuviðgerðir fyrir Reykjavíkurborg og mun nýi bíllinn koma þar að góðum notum.Lítill hiti tapast úr malbikinu með þessari aðferð.„Bíllinn er hannaður til holuviðgerða og er í raun byltingarkenndur,“ segir Vilhjálmur. Hann lýsir bílnum nánar. „Þetta er Volvo vörubíll með íláti undir malbiksblöndu sem heldur malbikinu heitu. Ílátið er búið dælubúnaði og armi sem er fjarstýrður þannig að dælt er beint ofan í holuna. Þetta er talsverð breyting því áður þurftu menn að moka malbikinu ofan í holurnar en við það tapaðist nokkur hiti úr malbikinu auk þess sem kornakúrfan skemmdist þegar blöndunni var kastað til,“ lýsir hann og bendir jafnframt á að malbikið tapi aðeins um einni hitagráðu á klukkutíma í bílnum sem þyki afar gott. Einn mesti kostur bílsins er að minni mannskap þarf við verkið. „Einn maður stjórnar fjarstýringunni meðan annar jafnar efsta lagið á malbikinu. Bíllinn sjálfur er einnig fjarstýrður og því þarf ekki að eyða tíma í að stökkva upp í bílinn til að færa hann til meðan á viðgerð stendur. Það er bylting fyrir öryggi starfsmanna þegar verið er að færa bílinn innan um mannskap sem er upptekinn við vinnu sína. Fagverk fékk Sprider vörubílinn til landsins fyrir áramót og hefur notað hann nokkuð til malbiksviðgerða nú þegar með góðum árangri. Vilhjálmur hlakkar til að geta notað hann enn meira þegar líður að sumri enda bíður stórt verkefni við holuviðgerðir á götum borgarinnar. „Við munum geta afkastað meiru auk þess sem þetta léttir mjög vinnuna fyrir mennina.“Færri starfsmenn þarf í verkið með nýja bílnum.Vilhjálmur er öllum hnútum kunnugur þegar kemur að malbiki enda fæddur inn í sannkallaða malbiksfjölskyldu. „Fjölskyldan átti í malbikunarfyrirtækinu Miðfelli sem var fyrsta einkarekna malbikunarfyrirtæki landsins, pabba minnir að fyrsta vélin hafi komið 1965 til Miðfells og hjá Miðfelli starfaði öll ættin,“ segir hann glettinn en hann stofnaði Fagverk árið 2004. „Hjá Fagverki starfa 8 frændsystkin sem eru annar ættliður frá Miðfelli og höldum við áfram að byggja ofan á starfsreynslu fyrri kynslóðar og vonandi skilum við henni til þeirrar þriðju síðar. Meginverkefni fyrirtækisins snúa að malbikun og fræsingu á malbiki en Fagverk er einnig byggingaverktaki, sinnir jarðvinnu og snjómokstri en fyrirtækið býr yfir fullbúnum bílum og tækjum í snjómokstur, söltun og söndun. Nánari upplýsingar á www.malbika.is. Fagverk verktakar ehf. Spóahöfða 18, Mosfellsbæ.
Mest lesið Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Viðskipti erlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga Viðskipti erlent Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira