

Í ár verður norrænt þema að sögn Ásu. „Við opnum hátíðina með Antboy 3, en Antboy er karakter sem börn eru farin að þekkja vel, auk þess sem danski leikstjórinn Ask Hasselbalch var gestur okkar á síðastu hátíð. Við munum einnig sýna fyrri tvær myndirnar, Antboy og Antboy og Rauða refsinornin.“
Af öðrum spennandi myndum nefnir Ása t.d. norsku ævintýramyndina Ævintýri á norðurslóðum, þar sem krakkar lenda í kröppum dansi við náttúruöflin, norsku ofurhetjumyndina Töffararnir, þar sem nördarnir í skólanum sigrast á hrekkjusvínunum og myndina Svalir krakkar gráta ekki, sem fjallar um unga stúlku sem elskar að spila fótbolta en veikist af hvítblæði. „Svo erum við með frábæra frumsýningu á sænsku myndinni Stelpan, mamman og djöflarnir, sem fjallar um unga stúlku sem býr með móður sinni sem þjáist af geðsjúkdómi.“
Fyrst og fremst verður þó fjölbreytnin í fyrirrúmi. „Við sýnum frábæra kvikmynd frá Eþíópíu um ungan strák og lambið hans, sérsýnum glænýja japanska teiknimynd, sýnum 40 ára afmælismynd Klaufabárðanna í fullri lengd, íslenskar kvikmyndir og klassík sem öll fjölskyldan hefur gaman af, t.a.m. E.T., The Wizard of Oz og The NeverEnding Story sem eru sýndar með íslenskum texta.“
Opnunarhátíðin á morgun, fimmtudag, verður vegleg og er ókeypis inn á hana. „Þá verður öllum boðið í Bíó Paradís kl. 17 þar sem töframaður tekur á móti börnunum og í kjölfarið verður Antboy 3 sýnd.“

Auk kvikmyndasýninga verður margt annað í boði á hátíðinni. „Við munum bjóða upp á pallborðsumræður í tilefni af frumsýningu sænsku myndarinnar Stelpan, mamman og djöflarnir, þar sem geðheilbrigðismál verða rædd og hvernig það er að vera barn sem á foreldri/a með geðsjúkdóma. Einnig ætlum við að bjóða upp á umræður eftir sýninguna á Svalir krakkar gráta ekki, um hvernig það er að vera ungur með krabbamein.“
Hilmar Sigurðsson mun halda fyrirlestur sem ber heitið „Hvernig verða tölvuteiknimyndir til?“ ásamt því að ræða nýjustu myndina sem hann vinnur að, Lói, þú flýgur aldrei einn. „Auk þess verður boðið upp á leiklistarnámskeið fyrir börn frá 9-12 ára þar sem þau læra hvernig á að undirbúa sig undir áheyrnarprufur fyrir kvikmyndir, undir styrkri stjórn Ólafs S.K. Þorvaldz leikara og leiklistarkennara. Tekið skal fram að skráning er í fullum gangi á námskeiðið en það verður haldið laugardaginn 1. apríl, kl. 10-12.“
Einnig verður boðið upp á sérstakar ókeypis skólasýningar ætlaðar þeim allra yngstu, skólabörnum og unglingastiginu. „Frítt er inn á skólasýningarnar og eru þær mikilvægur partur af Alþjóðlegri barnakvikmyndahátíð í Reykjavík.“
Dagskrána í heild sinni má nálgast á heimasíðu Bíós Paradísar auk þess sem hátíðin er með Facebook-síðu með öllum upplýsingum.