Juventus í frábærum málum eftir 3-0 sigur á Börsungum Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. apríl 2017 20:30 Paulo Dybala skoraði tvö mörk í kvöld. vísir/getty
Juventus er komið með annan fótinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir 3-0 sigur á Barcelona í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitunum í kvöld. Frábær og sannfærandi sigur hjá Ítalíumeisturunum á móti Spánarmeisturunum. Paulo Dybala hóf veisluna með marki á 7. mínútu leiksins þegar hann skoraði úr kyrrstöðu í teignum eftir sendingu frá Juan Cuadrado. Skömmu áður átti Gonzalo Higuaín skalla beint á markið eftir fast leikatriði en Juventus-liðið byrjaði vel. Dybala bætti öðru marki sínu við og öðru marki heimamanna á 22. mínútu þegar hann afgreiddi boltann frábærlega í netið með viðstöðulausu skoti úr teignum. Staðan 2-0 í hálfleik. Barcelona sótti í seinni hálfleik en komst lítt áleiðis gegn sterkri vörn Juventus. Giorgio Chiellini kom heimamönnum svo í 3-0 með skallamarki eftir hornspyrnu og þar við sat, 3-0. Það er auðvitað ekki hægt að afskrifa Barcelona en liðið tapaði eins og allir vita, 4-0, á móti Paris Saint-Germain í fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitum. Barcelona svaraði því með 6-1 sigri á heimavelli.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Fótbolti Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum HM-draumurinn úti hjá Betu og Belgum eftir vító Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Glódís nær risaáfanga og þrjár koma nýjar inn Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Daníel og Mikael gátu loksins fagnað saman Sjáðu íslensku eldflaugina frá DJ Sigga Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Fá marbletti og gefa marbletti: „Klárar í slagsmál“ „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Glódís og Þorsteinn sátu fyrir svörum Heitur HM draumur og mega ekki slaka á: „Getur allt farið til fjandans“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjá meira