Hrókeringar í ríkisstjórn Finnlands og ráðherrum fjölgað 26. apríl 2017 10:13 Juha Sipilä er forsætisráðherra Finnlands og formaður Miðflokksins. Vísir/AFP
Þrír nýir ráðherrar munu taka sæti í ríkisstjórn Finnlands og mun þeim fjölga úr fjórtán í sautján. Juha Sipilä, forsætisráðherra og formaður Miðflokksins, greindi frá þessu í gærkvöldi eftir viðræður stjórnarflokkanna um fjárlögin. Ekki er ljóst á þessari stundu hverjir munu taka sæti í ríkisstjórninni, en hver stjórnarflokkanna þriggja mun taka ákvörðun um hver úr sínum röðum tekur við ráðherradómi. Finnskir fjölmiðlar greina frá því að búist sé við að tilkynnt verði um nýja ráðherra í næstu viku. Málaflokkar munu sömuleiðis færast á milli flokkanna, þar sem Þjóðarbandalagið mun taka við dómsmálaráðuneytinu af Sönnum Finnum. Menningar- og íþróttamál verða tekin af kennslu- og menningarmálaráðherranum Sanni Grahn-Laasonen, Þjóðarbandalaginu, og færast málaflokkarnir til ráðherra Sannra Finna. Þá munu málaflokkar landbúnaðar- og umhverfismálaráðherrans Kimmo Tiilikainen, Miðflokknum, skiptast á tvo ráðherra. Menningar- og íþróttamálaráðherrann verður jafnframt ráðherra Evrópumála, en sá málaflokkur mun fara frá utanríkisráðherranum Timo Soini frá Sönnum Finnum. Miðflokkurinn, Þjóðarbandalagið og Sannir Finnar mynduðu saman borgaralega ríkisstjórn í maí 2015. Nítján ráðherrar voru í síðustu ríkisstjórn.
Finnland Norðurlönd Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira