Erdogan segir að Tyrkir gætu slitið Evrópusambandsviðræðum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. maí 2017 18:50 Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands. Vísir/Getty
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, varaði við því í dag að Tyrkir muni slíta aðildarviðræðum sínum við Evrópusambandið, ef að nýir samningskaflar verði ekki opnaðir innan tíðar. Sextán kaflar af 35 hafa verið opnaðir, síðan að aðildarviðræður hófust í október árið 2005, en Tyrkir hafa reynt að verða aðilar að sambandinu síðan á sjöunda áratug síðustu aldar og hefur aðild þeirra ávallt verið umdeild innan Evrópusambandsins.Það er enginn annar valmöguleiki en að opna kaflana sem hafa ekki verið opnaðir fyrr en nú. Ef sambandið mun ekki opna á þá, þá segjum við bless. Tyrkland er ekki dyravörður Evrópu. Erdogan gekk í dag aftur í sinn gamla flokk, en breytingar á stjórnkerfi Tyrklands standa nú yfir, eftir að Tyrkir samþykktu með naumindum að færa frekari völd til forsetaembættisins. Áður fyrr mátti forseti landsins ekki vera aðili í stjórnmálaflokki. Þjóðaratkvæðagreiðslan hefur ekki lagst vel í forustumenn Evrópusambandsins og sagði stækkunarstjóri þess til að mynda að Tyrkland færðist fjær Evrópu. Þá hafa nokkur aðildarríki sambandsins, með Austurríki í broddi fylkingar, lagt það til að aðildarferli Tyrklands ætti að frysta alfarið, vegna nýjustu vendinga í landinu. Federica Mogherini, utanríkismálastjóri sambandsins, þvertekur fyrir að aðildarviðræðunum hafi verið slitið og þá hefur Sigmar Gabriel, utanríkisráðherra Þýskaland, sagt að stjórnvöld í Berlín telji nauðsynlegt að halda aðildarviðræðum opnum.
Tengdar fréttir Segir Tyrkland vera að fjarlægjast Evrópu Stækkunarmálastjóri ESB segir ESB-aðild Tyrklands ekki vera á dagskrá. 2. maí 2017 10:28 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira
Segir Tyrkland vera að fjarlægjast Evrópu Stækkunarmálastjóri ESB segir ESB-aðild Tyrklands ekki vera á dagskrá. 2. maí 2017 10:28