Juan Mata dáðist að fegurð Nauthólsvíkur Anton Egilsson skrifar 27. maí 2017 10:28 Juan Mata var að taka myndir í Nauthólsvík þegar Bjarni Ævar Árnason og Guðmundur Geir Jónsson rákust á hann. Mynd: Bjarni Ævar Árnason
Juan Mata, leikmaður Manchester United á Englandi, er staddur á Íslandi um þessar mundir. Hann ku vera í fríi hér á landi ásamt fjölskyldu sinni en hann spókaði sig um í Nauthólsvík í gær. Þeir Bjarni Ævar Árnason og Guðmundur Geir Jónsson rákust á kappann í Nauthólsvík í gær. Í samtali við Vísi sagði Bjarni að Mata hafi verið að taka yfirlitsmyndir þegar þeir komu auga á hann. Hann hafi verið hinn vinalegasti og gefið sér tíma til að spjalla við þá félaga. Hinn 29 ára gamli Spánverji var í liði United sem bar sigurorð af Ajax í úrslitaleik Evrópudeildarinnar sem fram fór á Vinavöllum í Stokkhólmi á miðvikudaginn síðastliðinn. Þeir Bjarni og Guðmundur eru báðir miklir aðdáendur Manchester United og óskuðu honum að sjálfsögðu til hamingju með sigurinn. „Það var bara það fyrsta sem við gerðum,“ sagði Bjarni. Mata hefur verið í herbúðum Manchester United frá árinu 2014 en hann kom þangað frá Chelsea. Hann á að baki 41 landsleik fyrir Spán.
Enski boltinn Íslandsvinir Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Fótbolti Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Handbolti Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Enski boltinn Liverpool kvartar í dómarasamtökunum Enski boltinn „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Enski boltinn Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Enski boltinn Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool kvartar í dómarasamtökunum „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Mætti sínu gamla liði í fyrsta sinn og skoraði tvö sjálfsmörk Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Sanngjarn heimasigur Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Fantasýn: Er að hugsa um að taka fyrirliðabandið af Haaland Slot segir að Isak sé byrjaður aftur að æfa en bað um eitt Fantasýn: Sölvi Tryggva með leynivopn Fótboltaleikur í beinni á TikTok í fyrsta sinn Góður í að þekkja stórstjörnur sem börn Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Sjá meira