Krefur bæjarstjóra Vestmannaeyja um afsökunarbeiðni Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. maí 2017 11:57 Ferjan Baldur við höfn í Vestmannaeyjum. Vísir/Gísli Óskarsson
Halldór Jóhannesson, yfirstýrimaður á Baldri, segir að sér finnist að Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyja, eigi að skammast sín og biðja áhöfn Baldurs afsökunar á því sem hann kallar endalaus leiðindi og skítkasti sem Elliði hafi viðhaft opinberlega í garð þeirra. Þetta kemur fram í opnu bréfi Halldórs. Ferjan Baldur tók við áætlunarferðum Herjólfs til og frá Vestmannaeyjum í byrjun maí, á meðan Herjólfur hefur verið í slippi. Til að mynda lögðust ferðir Baldurs af þann 2. maí síðastliðinn vegna óhagstæðra skilyrða í Landeyjahöfn og hefur Baldur ekki leyfi til siglinga til Þorlákshafnar. Við það tilefni sagði bæjarstjórinn að staðan væri skelfileg. „Þessi staða er alveg skelfilega bagaleg og hreint furðulegt að einhverjum hafi látið sér detta í hug að fá skip til þjónustu við Vestmannaeyjar sem er í raun og veru jafn slæmt og jafnvel verra en núverandi Herjólfur í siglingum í Landeyjahöfn og getur síðan ekki þjónustað í Þorlákshöfn.“Sjá einnig: „Þessi staða er alveg skelfilega bagaleg.“ „Sæll Hr. bæjarstjóri, Elliði Vignisson. Nú er veru okkar á ferjunni Baldri að ljúka hér í Eyjum. Við höfum reynt að gera okkar besta og standa okkur eins vel og við gátum. Miðað við það sem við höfum í höndunum og það veðurfar sem að almættið skammtaði okkur.“ Í bréfi sínu segir Halldór að hann telji áhöfninni hafa staðið sig nokkuð vel, þó ekki hafi verið hægt að sigla fyrsta daginn vegna veðurs og þess að skipið var ekki klárt fyrir hafnirnar. Hann segir reynt hafi verið að haga siglingum þannig að sem best hafi farið um fólk, þó það hafi kallað á nokkrar lundaskoðunarferðir að Elliðaey, ferðamönnum til mikillar ánægju. „Það virðast all flestir Eyjamenn hafa skilning á þessu en alltaf eru einhverjir leiðindapungar í hverju partýi. Og þar fórst þú fremstur í flokki Hr. bæjarstjóri.“ Halldór tekur fram í lok bréfsins að hann skrifi það alfarið í eigin nafni en ekki annarra áhafnarmeðlima.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira