Innlent

For­vitinn minni­hluti styggir bæjar­stjórn: „Sláandi töl­fræði“

Bjarki Sigurðsson skrifar
Vilhjálmur Árnason er bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Vilhjálmur Árnason er bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Vísir/Vilhelm

Meirihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar hefur lagt til að framvegis verði haldið utan um þann vinnutíma sem starfsmenn sveitarfélagsins verja í að svara fyrirspurnum kjörinna fulltrúa eftir það sem þeir kalla „fyrirspurnarfaraldur“ forvitins minnihluta. Þá verði samhliða birtur áætlaður launakostnaður við úrvinnslu fyrirspurnanna.

Á fyrstu fimm mánuðum kjörtímabilsins hafi borist rúmlega nífalt fleiri fyrirspurnir frá minnihlutanum samanborið við fyrstu fimm mánuði síðasta kjörtímabils. 2022 voru fyrirspurnirnar tvær með níu spurningum en í ár nítján með 76 spurningum. 

„Hér er einfaldlega um sláandi tölfræði að ræða og getur aðeins verið útskýrð af pólitískum hvötum,“ segir í bókuninni. 

Meirihlutinn líkir þessu fyrirspurnaflóði við vinnubrögð Pírata á Alþingi.

„Þessi mikla fjölgun fyrirspurna hefur í för með sér verulegt viðbótarálag á starfsmenn sveitarfélagsins. Að baki skriflegum svörum liggur oft umfangsmikil vinna við upplýsingaöflun, samantektir, útreikninga og yfirferð gagna. Sá tími er ekki ótakmörkuð auðlind og fer óhjákvæmilega frá öðrum verkefnum sem starfsfólki sveitarfélagsins er ætlað að sinna í þágu bæjarbúa,“ segir í bókuninni. 

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (t.v.) er oddviti Framsóknar og Guðný Birna Guðmundsdóttir oddviti Samfylkingar.Vísir/Vilhelm

Í dag mynda Sjálfstæðismenn og Miðflokkurinn meirihluta en Sjálfstæðisflokkurinn var í minnihluta á síðasta kjörtímabili þegar fyrirspurnirnar voru færri. Miðflokkurinn var þá ekki með kjörinn fulltrúa. Forvitni minnihluti þessa kjörtímabils samanstendur af Samfylkingu og Framsókn sem voru í meirihluta á síðasta kjörtímabili. 

„Meirihlutinn leggur ríka áherslu á gagnsæi í stjórnsýslu Reykjanesbæjar og virðir mikilvægan rétt minnihlutans til upplýsingaöflunar og lýðræðislegs aðhalds. Meirihlutinn telur eðlilegt að minnihlutinn velti því fyrir sér hvort allar þær fyrirspurnir sem lagðar eru fram kalli á umfangsmikla skriflega úrvinnslu eða hvort afla megi hluta upplýsinganna með einfaldari hætti,“ segir í bókuninni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×