Fótbolti

Sjáðu flautumarkið frá miðju sem tryggði Svíum sigur á Frökkum | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ola Toivonen tryggði Svíum sigur á Frökkum í A-riðli undankeppni HM 2018 með ótrúlegu marki.

Frakkar, sem lentu í 2. sæti á EM á heimavelli í fyrra, komust yfir á 37. mínútu með marki Oliviers Giroud.

Jimmy Durmaz jafnaði í 1-1 á 43. mínútu og þannig var staðan allt fram á þriðju mínútu í uppbótartíma.

Þá átti Hugo Lloris, markvörður Frakklands, skelfilegt útspark sem fór beint til Toivonens á miðjunni. Hann var fljótur að hugsa, skaut í fyrsta og í tómt franska markið.

Svíar ærðust af fögnuði enda markið mikilvægt. Frakkar rétt náðu að taka miðjuna áður en Martin Atkinson, dómari leiksins, flautaði af.

Með sigrinum komust Svíar upp fyrir Frakka og á topp A-riðils.

Markið ótrúlega hjá Toivonen má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×