Fótbolti

Mætir Íslandi á sunnudag en orð hans á Instagram vöktu mikla athygli í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mario Mandzukic skorar hér markið sitt á móti Real Madrid.
Mario Mandzukic skorar hér markið sitt á móti Real Madrid. Vísir/Getty
Mario Mandzukic skoraði stórkostlegt mark í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á laugardaginn eða aðeins átta dögum áður en hann stígur inn á Laugardalsvöllinn til að mæta Íslandi í undankeppni HM.

Mandzukic skoraði markið með hjólhestaspyrnu eftir að hafa tekið boltann á brjóstkassann utarlega í vítateig Real Madrid. Mörkin verða varla fallegri en það sem hann skoraði í Wales. Markið hans Mandzukic dugði skammt í úrslitaleiknum á móti Real Madrid því Juventus tapaði leiknum 4-1.

Eitthvað hefur Mandzukic heyrt af gagnrýni eftir tapið í Cardiff því hann þótti ástæða til að svara gagnrýnendum sínum á Instagram í dag.

„Ljónið þarf ekki að hafa áhyggjur af skoðunum sauðkindanna,“ skrifaði Mario Mandzukic á Instagram-síðu sína.

Það mætti helst álykta sem svo að einhver hafi verið að halda því fram að kappinn væri ekki sigurvegari. Mandzukic birti nefnilega í leiðinni mynd af sér og öllum titlinum sem hann hefur unnið á ferlinum en þeir eru orðnir þó nokkrir eins og sést hér fyrir neðan.



 
A lion doesn't stress over the opinion of sheep. #neverstop #stepbystep #proud #lion #passion #mm17

A post shared by Mario Mandžukić  MM 17 (@mariomandzukic_official) on Jun 7, 2017 at 2:13am PDT





Mario Mandzukic var að klára sitt annað tímabil með Juventus og hefur unnið tvennuna á þeim báðum. Áður lék hann með Atlético Madrid og Bayern München þar sem hann vann tvennuna 2013 og 2014. Á fjórum af síðustu fimm tímabilum sínum hefur hann því unnið bæði deildina og bikarinn með liði sínu en því náði hann einnig tvisvar sem leikmaður Dinamo Zagreb í Króatíu.

Mandzukic hefur skorað 29 mörk í 75 landsleikjum fyrir Króatíu þar af 1 mark í 3 landsleikjum á móti Íslandi. Mandzukic skoraði í seinni umspilsleik Íslands og Króatíu um sæti á HM 2014 en hann fékk þá einnig rauða spjaldið fyrir brot á Jóhanni Berg Guðmundssyni.

Mandzukic tókst ekki að skora í fyrri leik þjóðanna í þessari undankeppni og var þá skipt útaf í uppbótartíma. Hann hefur hinsvegar skorað fimm mörk í hinum fjórum landsleikjunum sem Mandzukic hefur spilað frá því í október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×