Fótbolti

Hörður Björgvin: Ég er í leikformi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hörður Björgvin Magnússon skoraði glæsilegt mark í fyrsta sigri Íslands á Írum í Dyflinni í mars.
Hörður Björgvin Magnússon skoraði glæsilegt mark í fyrsta sigri Íslands á Írum í Dyflinni í mars. vísir/Getty
Hörður Björgvin Magnússon, leikmaður Bristol City í ensku B-deildinni, hefur ekki spilað marga fótboltaleiki á árinu 2017. Eftir að hafa byrjað fyrstu 24 leikina hjá Bris­tol var hann settur í frystikistuna af knattspyrnustjóra liðsins og tók aðeins þátt í fjórum leikjum af síðustu 22 í deildinni.

„Svona er bara boltinn. Þegar stjórinn hefur úr 35 leikmönnum að velja. Þá er erfitt að halda öllum góðum,“ segir Hörður Björgvin sem leitaði svara við þessari bekkjarsetu en greip meira og minna í tómt.

„Ég spurði hann spurninga um hvað ég þyrfti að bæta til að fá aftur minn spiltíma. Ég fékk tækifæri aftur og nýtti það vel en svo var skipt um kerfi og þá fór ég aftur á bekkinn.“

Þrátt fyrir mikla bekkjarsetu líkar Herði lífið vel á Englandi en hann kom í hörkuna í B-deildinni frá Ítalíu.

„Þetta er smá breyting frá Ítalíu en menningin er svipuð og á Íslandi þannig að ég var snöggur að aðlagast. Mér gekk vel í fyrstu 24 leikjunum sem ég spilaði en síðan koma líka erfiðir tímar. Þjálfarinn ræður liðinu og maður þarf bara að vera tilbúinn þegar kallið kemur aftur,“ segir hann.

Bekkjarsetan hjálpar Herði ekkert að vinna sér sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins en fá lið í heiminum í dag er erfiðara að komast inn í enda árangurinn verið stjarnfræðilegur á undanförnum misserum.

„Allt hefur þetta áhrif en landsliðsþjálfararnir vita og skilja vel ástæðu þess að ég er ekki að spila þarna úti. Þeir eru í reglulegu sambandi við okkur. Þeir sýndu þessu mikinn skilning og vita út í hvað ég er kominn þarna. Aðalmálið er að ég sé í standi og er að æfa vel. Ég er enn þá í leikformi,“ segir Hörður Björgvin Magnússon.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×