Fatimusjóðurinn gefur 8,6 milljónir til barna í Jemen Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. júní 2017 18:03 Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF, og Rannveig Guðmundsdóttir frá Fatimusjóðnum. mynd/laufey elíasdóttir
Fatimusjóðurinn, sem Jóhanna Kristjónsdóttir heitin stofnaði, afhenti UNICEF í dag 8,6 milljónir króna en fjármunirnir eru afrakstur söfnunar sem Jóhanna stóð fyrir allt þar til hún lést í maí síðastliðnum sem og afrakstur skákmaraþons Hrafn Jökulssonar og Hróksins. Í tilkynningu frá UNICEF segir að upphæðin renni til stríðshrjáðra barna í Jemen en síðastliðin tvö ár hefur geisað borgarastyrjöld í landinu og er hungursneyð nú yfirvofandi. Talið er að um 80 prósent barna í Jemen þurfi á aðstoð að halda og vinna starfsmenn UNICEF í landinu að því dag og nótt að veita börnum neyðaraðstoð. Fatimusjóðurinn var stofnaður árið 2005 og var upphaflega ætlað að styðja við menntun barna í Jemen. Síðustu ár hefur hann svo beitt sér fyrir margvíslegri uppbyggingu og neyðaraðstoð í Mið-Austurlöndum og verið í samstarfi við UNICEF. „Framlag Fatimusjóðsins er ómetanlegt og við hjá UNICEF á Íslandi erum innilega þakklát fyrir stuðninginn. Við minnumst Jóhönnu af miklum hlýhug og erum þakklát fyrir allt hið góða sem hún kom til leiða fyrir konur og börn í Jemen, Sýrlandi og víðar. Ótal börn sem aldrei hittu hana eiga henni svo margt að þakka,“ er haft eftir Bergsteini Jónssyni, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi, í tilkynningu.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira