Í gæsluvarðhaldi grunaður um kynferðisbrot gegn 12 ára stúlku Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. júní 2017 21:17 Maðurinn er grunaður um að hafa brotist inn á heimili stúlkunnar í Hafnarfirði og brotið gegn henni þar sem hún lá í rúmi sínu. Vísir/Daníel
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að karlmaður sæti gæsluvarðhaldi til 7. júlí næstkomandi en hann er meðal annars grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn 12 ára stúlku þegar hann kom óboðinn um inn í herbergið hennar á heimili hennar í Hafnarfirði í maí síðastliðnum. Í frétt Vísis um málið þá kom fram að mikil leit hefði verið gerð að manninum auk þess sem tæknideild lögreglu var kölluð á vettvang. Í úrskurði héraðsdóms nú er vísað í greinargerð lögreglu en þar segir að stúlkan hafi vaknað við snertingu mannsins þar sem hann stóð við rúm hennar. Á maðurinn meðal annars að hafa strokið henni um bakið og farið inn undir nærbol hennar og niður á mjöðm og rassinn.Flúði inn á bað undan manninum Stúlkan reyndi þá að færa sig fjær honum, að því er kemur fram í greinargerð lögreglu, en maðurinn þá farið upp í rúmið til hennar og reynt að strjúka henni meira. „Stúlkan hafi þá náð að fara inn á baðherbergi og læsa að sér, en kærði hafi þá náð að opna hurðina utan frá, en stúlkunni tekist að læsa aftur að sér. Kærði hafi svo farið inn í eldhús og síðan út úr húsinu. Tekin hafi verið skýrsla af stúlkunni í Barnahúsi 22. maí sl. og hafi hún lýst atvikum á sama hátt og hún hafði áður gert. Að hennar sögn hafi hún verið hrædd þegar atvikið átti sér stað og hafi hún átt erfitt með að tjá sig um atvikið og liðið mjög illa yfir því. Síðar í greinargerð lögreglu segir að fjórum sinnum sömu nótt hafi lögreglu verið tilkynnt um mann sem hafi verið að kíkja á glugga eða reyna að komast inn í hús í [...]. Telji lögregla að um sé að ræða kærða í öllum tilfellum. Þau mál séu einnig til rannsóknar, auk nokkurra annarra sambærilegra mála þar sem rökstuddur grunur leiki á um að kærði eigi í hlut,“ eins og greint er frá í greinargerð lögreglu.Einnig grunaður um blygðunarsemisbrot Maðurinn viðurkenndi við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa farið inn í hús hjá ákveðinni knu sem hann hefði hitt fyrr um kvöldið. Þá hefði hún staðið við glugga og sent honum koss með vörunum. Þá hafi hann farið inn í húsið og kvaðst hann kannast við að hafa „klappað stúlkunni.“ Hann neitaði því hins vegar að það hafi verið í kynferðislegum tilgangi. „Hann hafi síðan hafa áttað sig á þetta væri ekki áðurnefnd A. Þá hafi kærði ekki kannast við að hafa reynt að komast inn á baðherbergi til stúlkunnar. Þegar hann hafi farið út úr húsinu hefði hann tekið með sér flösku af gini. Kærði hafi sagst hafa fengið fyrirboða eða sýn um að kona í húsinu hefði boðið honum að koma inn og því hefði hann farið inn í húsið.“ Þá er maðurinn grunaður um að hafa einnig farið óboðinn inn í hús þann 29. mars síðastliðinn og verið þar með kynferðislegar athugasemdir í garð húsráðanda. Þá var tvívegis þá nótt sem hann er grunaður um að hafa farið inn til stúlkunnar tilkynnt um mann sem var að reyna að komast inn um glugga á heimili. Auk þess er maðurinn grunaður um blygðunarsemisbrot þar sem talið er að hann hafi gægst inn um baðherbergisglugga þar sem kona stóð ber að ofan. Maður mun því áfram sæta gæsluvarðhaldi, eða til 7. júlí næstkomandi.
Tengdar fréttir Úrskurðaður í sex daga gæsluvarðhald Maðurinn braust inn á heimili í Hafnarfirði aðfaranótt föstudags og fór inn í svefnherbergi stúlku á heimilinu 6. maí 2017 15:35 Braust inn í herbergi stúlku á grunnskólaaldri Lögreglan hefur rökstuddan grun um hver var á ferðinni, en mannsins er enn leitað. 5. maí 2017 13:03 Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira
Úrskurðaður í sex daga gæsluvarðhald Maðurinn braust inn á heimili í Hafnarfirði aðfaranótt föstudags og fór inn í svefnherbergi stúlku á heimilinu 6. maí 2017 15:35
Braust inn í herbergi stúlku á grunnskólaaldri Lögreglan hefur rökstuddan grun um hver var á ferðinni, en mannsins er enn leitað. 5. maí 2017 13:03