Þungavigtarfólk í Viðreisn mótfallið áformum samgönguráðherra um nýja flugstöð í Vatnsmýri Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. júní 2017 15:30 Þrír þingmenn Viðreisnar og einn ráðherra eru ekki hrifnir af áformum samgönguráðherra um að byggja nýja flugstöð í Vatnsmýri. vísir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra, segir að framtíð innanlandsflugs sé ekki í Vatnsmýri. Að ætla annað sé sóun á dýrmætum tíma og peningum segir ráðherrann í færslu á Twitter. Greint var frá því í Morgunblaðinu í dag að samgönguráðherra vonist til þess að á næsta ári verði hægt að hefja framkvæmdir við nýja flugstöð í Vatnsmýri. Þá var einnig greint frá því að ráðherrann ætli að skipa nýja nefnd sem verði falið að meta flugvallarkosti fyrir innanlandsflug en Rögnunefndin svokallaða fékk það verkefni á sínum tíma að meta það sama. Var niðurstaðan sú að Hvassahraun væri fýsilegasti kosturinn.Framtíð innanlandsflugs er ekki í Vatnsmýri. Að ætla annað er sóun á dýrmætum tíma og peningum.— þorgerður katrín (@thorgkatrin) June 21, 2017 Pawel Bartozsek, þingmaður Viðreisnar, ritar svo pistil á heimasíðu sína í dag þar sem hann gagnrýnir þessi áform Jóns. Í pistlinum segir Pawel að honum lítist vel á flugvöll í Hvassahrauni en hann leggur út frá því hversu ódýrt er nú orðið að fljúga héðan til Evrópu og svo innan Evrópu sjálfrar. Þingmaðurinn bendir á að árið 1998 hafi flugmiði til London kostað 20 þúsund krónur. Framreiknað í dag, með tilliti til verðbólgu, séu það 100 þúsund krónur en í dag má komast til London fyrir minna en 10 þúsund kall. „Í þá daga var hvert land með sitt aðalflugfélag, og hvert land með sinn aðalflugvöll. Ætlaði maður sér að fljúga annað en á aðalflugvöllinn gat maður náðarsamlega fengið að fljúga með aðalflugfélaginu á svona 40 þúsundkall á mann fram og til baka og fengið te eða kaffi, og samloku. Eftir að ESB frelsaði flugmarkaðinn er fjölbreytninn alls ráðandi. Menn geta flogið frá Lublin til Liverpool, af því að… einhver vill fljúga frá Lublin til Liverpool, óháð því hvort flugmálayfirvöldun Póllands og Bretlands hafi dreymt þessa flugleið eða ekki. Þannig er þetta nefnilega oft. Stjórnmálamenn og stjórnarmenn í einokunarfyrirtækjum dreymir um „miðstöðvar“, að mistöð svona samgangna verði hér, miðstöð hinsegin samgangna verði þar. Innanlandsflugið hingað, millilandaflugið þangað. Frjáls markaður býr til miklu dreifðara og betra net,“ segir Pawel í pistlinum og bætir við að fjárfestingar í flugvöllum séu af þeirri stærðargráðu að eflaust verði ekki komist hjá því að hið opinbera komi að málum.Pawel segir að flugvöllur í Hvassahrauni myndi tengja betur saman innanlandsflug og millilandaflug sem fer í gegnum Keflavíkurflugvöll.Vísir/VilhelmLíst vel á nýjan flugvöll í Hvassahrauni „En ákvarðanir um þessi mál eiga að miða að því að efla það sem við vitum að virkar og skilar neytendum árangri: frelsi og samkeppni. Þess vegna líst mér vel á nýjan flugvöll á Hvassahrauni og myndi taka vel í það ef einhver myndi vilja taka þátt í að byggja slíka flugvöll upp. Þar væri möguleiki á að tengja íslenskt innanlandsflug við millilandaflug. Þar myndi skapast tækifæri til að búa til samkeppni við Kelfavíkurflugvöll um lendingar og afgreiðslu véla. Loks hefði slíkur flugvöllur líka talsverða vaxtarmöguleika. Þetta eru allt miklir kostir. Uppbygging á Reykjavíkurflugvelli, á takmörkuðu landi, þar sem aldrei verður hægt að koma fyrir millilandaflugi, þar sem ekki verður hægt að tengja millilandaflug við innanlandsflug og uppbygging sem þar fyrir utan er töluvert umdeild pólitískt, hefur einfaldlega ekki þessa sömu kosti.“Reykjavíkurflugvöllur í Vatnsmýri.VísirUngliðahreyfing Viðreisnar sendi jafnframt frá sér ályktun um málið í dag þar sem áformum ráðherrans er mótmælt. Þingmennirnir Jón Steindór Valdimarsson og Hanna Katrín Friðriksson deila bæði ályktuninni á Facebook-síðum sínum en í ályktuninni segir meðal annars: „Slíkar framkvæmdir yrðu fyrst og fremst til þess fallnar að ýta undir sundrung og skotgrafastjórnmál og flækja umræðuna um framtíð flugvallarins enn frekar. Að mati Ungliðahreyfingarinnar er hugmyndin vanhugsuð og á skjön við þarfir og óskir almennings. Ráðherra nefnir þau rök, áformum sínum til stuðnings, að tímabært sé að byggja nýjan og betri flugvöll. Ungliðahreyfingin sýnir þeim sjónarmiðum skilning en beinir athygli ráðherra að því að sátt hefur enn ekki náðst um framtíðarstaðsetningu flugvallarins. Því er varhugavert að verja háum fjárhæðum í uppbyggingu flugstöðvar á þessum tímapunkti. Slíkt er hvorki skynsamleg nýting skattfjár né almannahagsmunum í vil.“ Ungliðarnir hvetja ráðherrann til að endurskoða þessi áform sín en Jón Steindór deilir ályktuninni með þeim orðum að flas sé ekki til fagnaðar.Hanna Katrín segir svo í sinni færslu að það sé ekki öllum gefið að vera lausnamiðaðir í flóknum og erfiðum deilumálum: „Ég er þeirrar skoðunar að framtíðarstaðsetning innanlandsflugsins sé utan miðborgar Reykjavíkur. Ennfremur, að hagsmunir okkar stærstu atvinnugreinar, ferðaþjónustunnar, séu best tryggðir með því að hafa öflugt innanlandsflug beint frá alþjóðaflugvelli. Augljóslega stendur Reykjavíkurflugvöllur þar sem hann er þar til ný lausn er fundin. Ég heyri ekki marga mótmæla því. Það er hins vegar ekki klókt að nýta sér þá afstöðu til að fara bakdyramegin að því að reyna að festa völlinn í sessi í Vatnsmýrinni. Ég er sammála ungliðahreyfingu Viðreisnar í því að slíkt sé „fyrst og fremst til þess fallið að ýta undir sundrung og skotgrafastjórnmál og flækja umræðuna um framtíð flugvallarins enn frekar.“ Staðsetningin á ekki að snúast um það hver hefur betur í störukeppninni, heldur um heildarhagsmuni okkar Íslendinga í náinni framtíð.“
Tengdar fréttir Hægt að nýta nýju flugstöðina í annað ef flugvöllurinn fer Jón Gunnarsson samgönguráðherra segir að ef breytingar verði gerðar á staðsetningu innanlandsflugs verði hægt að nýta nýja flugstöð sem stendur til að byggja til annars. 21. júní 2017 10:45 Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Sjá meira
Hægt að nýta nýju flugstöðina í annað ef flugvöllurinn fer Jón Gunnarsson samgönguráðherra segir að ef breytingar verði gerðar á staðsetningu innanlandsflugs verði hægt að nýta nýja flugstöð sem stendur til að byggja til annars. 21. júní 2017 10:45