Glamour ákvað að taka saman nokkur góð ráð til að hafa í huga þegar verslað er á útsölum til að gera sem bestu kaupin.
1. Ekki kaupa flíkina einungis vegna þess að hún er á útsölu.
2. Ef flíkin sem þú ert að hugsa um passar ekki við neitt annað í fataskápnum þínum, ekki kaupa hana. Þú munt mjög líklega aldrei nota hana.
3. Ef stærðin þín er ekki til, slepptu þessu. Ekki kaupa of litla stærð því þú heldur að þú munst passa í hana seinna. Það er ávísun á að flíkin mun daga uppi í fataskápnum með verðmiðanum á og enda í endurvinnslunni.
4. Vertu undirbúin, ef þú ert búin að hafa auga á einhverri flík lengi þá er tækifærið núna. Farðu yfir fataskápinn og skoðaðu hvað vantar inn? Gott er að nýta sumarfríið í að taka góða tiltekt í fataskápnum og undirbúa hann fyrir veturinn. Þá er maður með betri yfirsýn yfir hvað vantar inn.
5. Geturðu notað flíkina við fleiri en eitt tilefni og geturðu notað hana á marga vegu?
6. Leitaðu að einföldum og klassískum hlutum. Kannski ekki kaupa þér kjól með sebramynstri bara því hann er á góðu verði, ef það er ekki beint þinn stíll.
7. Skoðaðu hvað verður í tísku næstu árstíðir. Ef þú finnur til dæmis klassíska kápu fyrir haustið þá ertu að gera góð kaup. Einfaldir bolir, skyrtur og gallabuxur í klæðilegu sniði eru klassískar flíkur sem fara ekki úr tísku. Skoðaðu flíkur með yfirleitt með hærri verðmiða, eins og yfirhafnir eða leðurflíkur, því þá ertu að fá meira fyrir peninginn.

- Einfaldir stuttermabolir
- Gallabuxur
- Mokkasínur
- Strigaskór
- Rykfrakki
- Þunnir silkiklútar
- Skyrtur
- Kimono
- Blómakjólar, sem hægt er að nota í vetur yfir buxur og undir þykkar peysur.



