Butler gaf upp símanúmerið sitt á blaðamannafundi | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. júní 2017 23:15 Nú er bara að prófa að hringja. mynd/skjáskot
Jimmy Butler, þrefaldur stjörnuleikmaður NBA og landsliðsmaður Bandaríkjanna í körfubolta, var afar óvænt skipt frá Chicago Bulls til Minnesota Timberwolves daginn sem nýliðavalið fór fram. Chicago ákvað að taka nýja stefnu með félagið og spila á yngri leikmönnum en Butler hefur fengið sinn skerf af gagnrýni undanfarna daga eftir leikmannaskiptin. Því hefur verið haldið fram að hann sé ekki góður í klefanum, sé enginn leiðtogi og alls ekki leikmaður sem hægt sé að byggja gott lið í kringum. Antonie Walker, fyrrverandi leikmaður Boston Celtics sem er frá Chicago, er einn þeirra sem hefur gagnrýnt Butler harðlega. Butler var spurður út í þessa gagnrýni á fyrsta blaðamannafundinum sem leikmaður Timberwolves sem fram fór í Mall of America. Þar fór hann óhefðbundnar leiðir í að svara fyrir sig og gaf upp símanúmerið sitt. „Þetta truflar mig ekkert. Það mátti alveg búast við þessu. Það þarf einhver að taka þetta á sig og ég skal vera sá maður,“ sagði Butler. „Það hafa allir rétt á sínum skoðunum en að því sögðu þá er síminn minn í rassvasanum á þessari stundu. Ef einhver hefur eitthvað við mig að segja þá er bara að hringja í 773-899-6071. Ef þið viljið viðtal þá er bara um að gera og hringja,“ sagði Jimmy Butler. Michael Smith og Jemele Hill, íþróttafréttamenn á ESPN, tóku Butler á orðinu og reyndu að hringja í hann í beinni útsendingu en fengu bara símsvara. Myndband af fundinum og tilraunum Michael og Jemele til að hringja í Butler má sjá í myndbandinu hér að neðan.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira