Kínverskur maður beðinn afsökunar vegna „hinseginbælingar“ Kristín Ólafsdóttir skrifar 4. júlí 2017 08:44 Frá gleðigöngu hinseginfólks í Hong Kong, sjálfstórnarhéraði í Kína, í fyrra. Vísir/Getty
Samkynhneigður, kínverskur maður hefur borið sigur úr býtum í baráttu sinni við geðheilbrigðisstofnun í bænum Zhumadian í Henan-héraði í Kína. Hann hafði verið lagður inn á sjúkrahúsið vegna samkynhneigðar sinnar en markmiðið með innlögninni var að bæla hana niður. Eiginkona mannsins og önnur skyldmenni lögðu hann inn á sjúkrahúsið árið 2015. Maðurinn var neyddur til að taka inn lyf og þiggja sprautur í 19 daga vegna „ástands síns“ en meðferðinni var ætlað að gera hann gagnkynhneigðan. Sjúkrahúsinu hefur verið gert að greiða manninum bætur og biðja hann opinberlega afsökunar á meðferðinni. Læknar á sjúkrahúsinu greindu manninn, sem er 38 ára gamall, með „kynhneigðarröskun“ en samkynhneigð var flokkuð sem geðsjúkdómur í Kína þangað til árið 2001. Málefni hinsegin-fólks hafa hlotið æ stærri hljómgrunn í Kína á síðari árum. Ríkið á þó enn langt í land en talið er að milljónir samkynhneigðra séu fastir í hjónaböndum með fólki af gagnstæðu kyni vegna samfélagslegra viðhorfa.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Buxnalaus Lalli olli glundroða Innlent Fleiri fréttir Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Sjá meira