Bannaði Trump að banna fjölmiðla Smári Jökull Jónsson skrifar 24. september 2026 06:36 Trump á í stríði við fjölmiðla í Bandaríkjunum. Vísir/Getty Alríkisdómari í Washington DC hefur skipað Hvíta húsinu að veita þremur fjölmiðlum sem Donald Trump bannaði úr byggingunni í síðustu viku aftur aðgang að byggingunni. Samkvæmt úrskurðinum eiga miðlarnir að fá aðgang að Hvíta húsinu næstu fjórtán daga á meðan málið er til meðferðar fyrir dómi.
Um er að ræða miðlana CNN, MS NOW og Politico. Dómstóllinn gaf út tímabundinn lögbannsúrskurð sem þýðir að miðlarnir þrír skulu fá aðgangsheimildir sínar að Hvíta húsinu til baka næstu tvær vikurnar. Á meðan verður málið til meðferðar fyrir dómi. Fjölmiðlarnir höfðuðu mál eftir að Trump setti bannið og héldu því fram að það bryti gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna. Blaðamenn miðlanna voru sviptir aðgangsspjöldum sínum og meinaður aðgangur að Hvíta húsinu. Stjörnvöld sögðu þjóðaröryggi ógnað Í málsvörn sinni fyrir dómi hélt ríkisstjórn Trumps því fram að miðlarnir þrír hefðu birt falsfréttir og að fréttaflutningur þeirra ógnaði þjóðaröryggi. Dómarinn hafnaði þeim rökum. Alríkisdómarinn Timothy Kelly komst að þeirri niðurstöðu að CNN, Politico og MS NOW væru líkleg til að sýna fram á að Hvíta húsið hefði ekki farið að viðeigandi málsmeðferðarreglum þegar bannið var sett á. Benti dómarinn jafnframt á að rökin um þjóðaröryggi virtust ekki halda vatni, enda hefði forsetinn ekki minnst á öryggissjónarmið í upphaflegri tilkynningu sinni um bannið. Í úrskurðinum sagði dómarinn að engin gögn styddu að afturköllun aðgangsspjaldanna varðaði hvorki þjóðaröryggi, né að öryggi Bandaríkjanna væri stefnt í hættu ef aðgangurinn yrði endurvakinn á meðan málareksturinn stendur yfir. Vísuðu í umfjöllun um nýjan veislusal Til stuðnings banninu vísuðu stjórnvöld í fjölda greina sem miðlarnir höfðu birt, þar á meðal umfjöllun um framkvæmdir við Hvíta húsið og byggingu á nýjum veislusal. Dómarinn benti á að í flestum tilvikum hefðu greinarnar sem stjórnvöld gerðu athugasemdir við verið skrifaðar af blaðamönnum sem höfðu ekki aðgang að Hvíta húsinu. Í þeim tilvikum sem eftir stóðu hefðu stjórnvöld ekki sýnt fram á að aðgangsspjald viðkomandi blaðamanns hefði skipt sköpum fyrir umræddar fréttir. Hvíta húsið hefur ekki tjáð sig um úrskurðinn en lögmenn forsetans gætu ákveðið að áfrýja málinu.
Donald Trump Bandaríkin Fjölmiðlar Mest lesið Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Dagný Ósk látin Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Innlent Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Innlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Fleiri fréttir Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Sjá meira