Norsku meistararnir í Rosenborg eru komnir áfram í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu eins og Íslandsmeistarar FH.
Norðmennirnir geta þakkað íslenskum framherja liðsins að félagið komst áfram í kvöld.
Rosenborg vann þá 2-1 sigur á írska félaginu Dundalk eftir framlengdan leik og þar með 3-2 samanlagt. Þessi leikur fór fram á heimavelli Rosenborg en liðin gerðu 1-1 jafntefli út í Írlandi.
Matthías Vilhjálmsson kom inná sem varamaður og skoraði sigurmark Rosenborg eftir átta mínútna leik í framlengingunni. Matthías skoraði markið með skalla af stuttu færi eftir fyrirgjöf.
Brian Gartland kom Dundalk í 1-0 strax á 12. mínútu en Yann-Erik de Lanlay jafnaði fyrir Rosenborg rétt fyrir hálfleik. Matthías kom sem síðan inn á völlinn á 72. mínútu þegar staðan var ennþá 1-1.
Ekkert var skorað það sem eftir lifði venjulegs leiktíma en úrslitin réðustu svo í fyrri hluta framlengingarinnar þar sem íslenski framherjinn var réttur maður á réttum stað eins og svo oft í sumar.
Matthías hefur skorað 15 mörk fyrir Rosenborg í öllum keppnum á leiktíðinni þrátt fyrir að hafa aðeins byrjað inná í 10 leikjum liðsins.
Rosenborg mætir vað öllum líkindum Celtic frá Skotlandi í næstu umferð Meistaradeildarinnar. Celtic vann fyrri leikinn 2-0 á móti Linfield og er 1-0 yfir í hálfleik í seinni leiknum.
