Miklir skógareldar við Adríahafið Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 19. júlí 2017 07:00 Svona var ástandið í Podstrana nærri borginni Split í gær. Vísir/AFP
Vel hefur tekist að ráða við skógarelda sem ógnað hafa borginni Split, mikilvægri hafnarborg við Adríahaf, undanfarna daga. Frá þessu greindi Andrej Plenkovic, forsætisráðherra Króatíu, í gær. Sagði hann að blessunarlega hefði tekist að rýma tugi húsa nærri Split sem síðar hafi orðið eldunum að bráð. Að sögn Plenkovic hefur veðrið hjálpað slökkviliði mikið í baráttunni við eldana. Kviknuðu þeir meðal annars vegna sterkra vinda og mikilla þurrka. Nú hefur lygnt og hefur það bæði heft útbreiðslu eldanna sem og gert flugvélum slökkviliðs auðveldara fyrir. Ríkissjónvarp Svartfjallalands greindi jafnframt frá því í gær að ríkisstjórn landsins hefði beðið Atlantshafsbandalagið um að senda tvær slökkviliðsflugvélar til Lustica-skaga þar í landi til að kljást við skógarelda. Segir í fréttinni að Atlantshafsbandalagið kanni nú hvaða ríki geti orðið við bóninni. Lustica-skagi er allur sagður loga en þar hefur verið einkar þurrt undanfarið og vindar miklir. Rúmlega hundrað hafa þurft að yfirgefa heimili sín á skaganum.
Birtist í Fréttablaðinu Svartfjallaland Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira