O.J. Simpson sækir um reynslulausn Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 18. júlí 2017 10:25 O.J. Simpson var dæmdur í 33 ára fangelsi árið 2008 með möguleika á reynslulausn að níu árum liðnum. Vísir/Getty
Fjórir meðlimir í nefnd Nevada ríkis um reynslulausn munu á fimmtudaginn taka ákvörðun um hvort fangi númer 1027820 skuli hljóta reynslulausn. Fanginn sem um ræðir er O.J. Simpson, fyrrverandi ruðningskappi, sem situr í fangelsi fyrir misheppnaða ránstilraun í Las Vegas í september árið 2007. Simpson var sýknaður árið 1995 af ákæru fyrir morðið á fyrrverandi eiginkonu sinni, Nicole Brown Simpson og vini hennar Ron Goldman. Réttarhöldin yfir Simpson á tíunda áratugnum eru ein þau frægustu í sögu Bandaríkjanna. Enn hefur enginn verið dæmdur fyrir morðin á Brow Simpson og Goldman. Samkvæmt tveimur fyrrum meðlimur nefndarinnar mun Simpson fá sömu meðferð og hver annar fangi, þrátt fyrir að hann sé fyrir löngu orðin alræmdur í Bandaríkjunum. „Það er það sem er fallegt við þetta kerfi, það virkar eins fyrir alla,“ segir Dorla Salling, sem sat í nefnd um reynslulausn á árunum 2000-2009. „Það skiptir engu máli hvað þú heitir.“Almannaálit skipti engu Réttarhöldin yfir O.J. árið 1995 eru gjarnan kölluð „réttarhöld aldarinnar“ í fjölmiðlum vestanhafs og vöktu þau aftur mikla athygli á síðasta ári þegar sjónvarpsþættirnir American Crime Story: The People v. O.J. Simpson og heimildarmyndin O.J: Made in America, komu út og hlutu fjölda verðlauna. En áhugi almennings á máli Simpson mun ekki hafa áhrif á mat nefndarinnar, segir Thomas Patton, annar fyrrverandi meðlimur hennar. „Þau eru að skoða þennan tiltekna glæp sem hann var fangelsaður fyrir í Nevada,“ segir Patton. „Ég held ekki að heimildarmyndir eða sjónvarpsþættir, það kæmi mér mjög á óvart ef það hefði áhrif á mat nefndarinnar.“ Árið 2008 var Simpson dæmdur í fangelsi fyrir að vopnað rán á hótelherbergi í Las Vegas. Hann hafði brotist inn ásamt fimm öðrum mönnum og lagt hald á ýmsa muni sem hann taldi vera sína eign, meðal annars fótbolta, veggplatta og myndir af börnum hans. Ákæran yfir honum var í 12 liðum og var hann meðal annars dæmdur fyrir mannrán og vopnað rán. Hann var dæmdur í 33 ára fangelsi með möguleika á reynslulausn eftir níu ár. Nefndin mun rannsaka hegðun Simpson á meðan hann hefur afplánað dóminn og spyrja hann um framtíðaráform, meðal annars hvar hann hygst búa ef hann fær lausn. Ef nefndin kemst ekki að einróma niðurstöðu og neitar Simpson reynslulausn gæti hann setið inni til ársins 2022. „Þau þurfa að gera það sem þau telja rétt og hunsa álit almennings,“ segir Salling. „Það er svo mikilvægt að koma eins fram við alla. Það er það sem þetta fólk gerir allan daginn alla daga.“Hér fyrir neðan má sjá myndefni frá því O.J. Simpson var sýknaður árið 1995.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Fleiri fréttir Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Sjá meira