Kanadískir trúarleiðtogar sakaðir um fjölkvæni Kristín Ólafsdóttir skrifar 24. júlí 2017 07:20 Árið 2008 gerði lögregla áhlaup á búgarð í Texas. Meðlimir í FLDS-söfnuðinum bjuggu á búgarðinum, þar af 439 börn, en nokkir menn voru í kjölfarið sóttir til saka fyrir fjölkvæni og barnaníð. Vísir/Getty
Búist er við því að dæmt verði í máli tveggja kanadískra trúarleiðtoga, sem sakaðir hafa verið um fjölkvæni, í dag. Dómsins hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins. Winston Blackmore er sakaður um að eiga tuttugu og fjórar eiginkonur og fyrrverandi mágur hans, James Olar, er sagður hafa gifst fjórum konum. Mennirnir eru báðir fyrrverandi biskupar mormónasértrúarsöfnuðarins FLDS (Fundamentalist Church of Jesus Christ of Latter Day Saints), og eru 61 og 53 ára. Fjölkvæni er ólöglegt í Kanada en mennirnir eiga yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsisvist, verði þeir dæmdir sekir. Blackmore var bannfærður úr söfnuðinum árið 2002 og Oler tók við sæti hans skömmu síðar. Talið er að Blackmore eigi um 145 börn. Fjölkvæni er ein af grunnstoðum FLDS-söfnuðarins, sem klauf sig frá söfnuði mormóna á síðustu öld þegar almenni söfnuðurinn lét af fjölkvæni. Stjórnvöld í Kanada og Bandaríkjunum hafa sótt fjölmarga trúarleiðtoga innan kirkjunnar til saka fyrir fjölkvæni og barnaníð, þar á meðal hinn bandaríska FLDS-leiðtoga Warren Jeffs. Hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi árið 2011 fyrir kynferðislega misnotkun á tveimur stúlkum sem hann hafði tekið sér sem eiginkonur.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Fleiri fréttir Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Sjá meira