Fæturnir blóðugir eftir árás dularfullra sjávarlífvera Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. ágúst 2017 12:45 Eftir um þrjátíu mínútna bað kom Sam Kanizay aftur á land en þá voru fætur hans þaktir litlum stungusárum sem mikið blæddi úr. Vísir/afp
Sextán ára piltur, sem stakk sér til sunds á strönd í Melbourne í Ástralíu, hefur vakið athygli sjávarlíffræðinga en þegar pilturinn kom aftur upp úr sjónum voru fætur hans þaktir blóði. Talið er að einhvers konar sjávarlífverur hafi valdið meiðslunum en sérfræðingum ber ekki saman um hvaða dýr það hafi verið.Rétt er að vara við nærmynd af meiðslum piltsins sem fylgir fréttinni hér að neðan. Sam Kanizay ákvað að kæla fætur sína í sjónum eftir fótboltaleik á laugardag í borginni Melbourne. Eftir um þrjátíu mínútna bað kom hann aftur á land en þá voru fætur hans þaktir litlum stungusárum sem mikið blæddi úr, að því er fram kemur í frétt AP-fréttaveitunnar. Faðir Kanizay sagði starfsfólk sjúkrahússins ekki hafa hugmynd um hvers konar skepna hafi getað valdið sárunum. Hann tók því til sinna ráða og sneri aftur á ströndina daginn eftir. Þar fangaði hann nokkrar litlar sjávarlífverur. „Það er greinilegt að þessi litlu sníkjudýr elska kjöt,“ sagði Jarrod Kanizay, faðir Sams. Hann veiddi dýrin, sem svipar nokkuð til skordýra, með því að nota kjöt sem beitu. Hann telur að dýrin beri ábyrgð á meiðslum sonarins.Engar skýringar hafa enn fengist á meiðslum Sam Kanizay.Vísir/AFPSérfræðingum ber ekki saman um hvers konar dýr hafi bitið eða stungið piltinn. Einhverjir telja að um sé að ræða tegund lífvera sem venjulega leggur sér rotnandi plöntuleifar til munns. Aðrir segjast ekki muna eftir því að hafa séð sníkjudýr á borð við þessi áður.
Mest lesið Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Fleiri fréttir Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Sjá meira