Boða rannsókn á lágflugi við Hlíðarrétt Garðar Örn Úlfarsson skrifar 9. september 2017 07:00 TF-KOZ var ítrekað flogið yfir Hlíðarrétt í Mývatnssveit síðastliðinn sunnudag. Eigandi flugvélarinnar varar við því að miðað sé við myndir til að meta flughæð. vísir/benedikt bóas
Lágflug á tveggja manna flugvélinni TF-KOZ yfir Hlíðarrétt í Mývatnssveit síðastliðinn sunnudag verður tekið til athugunar hjá Samgöngustofu vegna gruns um að vélinni hafi verið flogið undir leyfilegri lágmarkshæð. „Samgöngustofa hefur umrætt atvik til skoðunar og forsendur flugsins, enda er af myndum að dæma ástæða til þess,“ segir í svari frá Þórhildi Elínardóttur, upplýsingafulltrúa Samgöngustofu. Maður sem var í réttunum þennan dag sagði við Fréttablaðið að flogið hefði verið í nokkurra tuga metra hæð að minnsta kosti fimm sinnum yfir svæðið. Lágflugið hafi ekki fallið vel í kramið hjá öllum viðstöddum, það hafi helst verið að börnum á staðnum hafi þótt það spennandi. Þórhildur segir þó að fyrir utan fyrirspurn Fréttablaðsins um málið hafi ekki borist sérstakar tilkynningar um umrætt flug „En almennt er hvert atvik skoðað,“ segir hún. Þórhildur segir að ekki megi fljúga sjónflug, nema nauðsynlegt sé vegna flugtaks og lendingar eða þá með sérstöku leyfi, yfir þéttbýli í minni hæð en eitt þúsund fetum og annars staðar ekki í minni hæð en fimm hundruð fetum. Í metrum er það annars vegar um 305 metra hæð og hins vegar 152 metra hæð.Þórhildur Elínardóttir, upplýsingafulltrúi Samgöngustofu.„Ef í ljós kemur að reglur um lágmarksflughæð hafa ekki verið virtar er flugmönnum yfirleitt send áminning/tilmæli. Almennt hafa brot gegn flugreglum viðurlög samkvæmt lögum um loftferðir eftir því sem við á,“ segir Þórhildur. Eigendur TF-KOZ eru heimamennirnir Birgir Steingrímsson og Leifur Hallgrímsson sem eru meðal eigenda Mýflugs. Aðspurður um flugið þennan dag bendir Birgir á að varasamt sé að miða við myndir þegar meta eigi flughæð. „Við höfum mæli í vélinni sem segir okkur hvað við förum hátt,“ segir hann. Þórhildur segir að á hverju ári, einkum á sumrin, komi yfirleitt upp nokkur atvik sem gerð sé athugsemd við. „Þá berast Samgöngustofu einnig af og til athugasemdir um meint lágflug en í ljós kemur að framkvæmd flugsins var í samræmi við reglur,“ segir upplýsingafulltrúinn. Að sögn Birgis er sú tilhneiging í gangi að agnúast út í allt sem heitir flug. Neikvæð umræða sé gagnvart flugi. „Ég veit ekki hvort Reykjavíkurflugvallarumræðan er eitthvað að eitra út frá sér eða hvað. Það er alltaf verið að nöldra um að menn séu að fljúga of lágt þótt maður viti að þeir eru ekki að fljúga of lágt. Þetta er einhver mórall sem virðist vera að grassera,“ segir Birgir Steingrímsson.Flug skapi hvorki hávaða né hættu fyrir fólkÍ skýrslu sinni um slys er lítil flugvél í lágflugi yfir veiðihúsi í Vopnafirði sumarið 2009 rakst á rafmagnslínu og farþeginn lét lífið vitnar Rannsóknarnefnd flugslysa í reglur um lágmarksflughæð: „Loftförum skal ekki flogið neðan lágmarksflughæða nema við flugtök og lendingar. Haga skal flugi þannig að það skapi ekki ónauðsynlegan hávaða né hættu fyrir fólk og eignir komi til nauðlendingar.“ „Ég get alveg skilið að fólk elski ekkert að heyra hljóð í flugvél. Fyrir þá sem ekki hafa neinn áhuga á flugi, þá er þetta alveg hávaði í þeim mörgum,“ segir Birgir Steingrímsson, annar eigenda TF-KOZ. Ekki skipti máli hvort flogið sé í fimm hundruð eða þúsund fetum. „Hljóðið berst mjög auðveldlega í loftinu þegar ekkert er á milli. Fyrir vikið telur fólk að vélarnar séu lægra af því að það heyrist svona vel.“
Birtist í Fréttablaðinu Fréttir af flugi Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira