Fótbolti

Svona var blaðamannafundur Heimis og Arons Einars

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ísland mætir á morgun Úkraínu í mikilvægum leik í undankeppni HM 2018 á Laugardalsvelli en þeir Heimir Hallgrímsson og Aron Einar Gunnarsson sátu í dag fyrir svörum á blaðamannafundi.

Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundinum sem má sjá hér fyrir ofan, sem og beina textalýsingu.

Ísland tapaði fyrir Finnlandi, 1-0, ytra um helgina og féll um leið niður í þriðja sæti riðilsins. Úkraína stökk upp í annað sætið eftir 2-0 sigur á Tyrklandi.

Leikurinn fer fram á morgun, þriðjudag, klukkan 18.45.

Uppfært klukkan 11:15

Útsendingunni er lokið og er hægt að horfa á fundinn í heild sinni hér fyrir ofan. Að neðan má lesa textalýsingu frá fundinum.

Bein textalýsing



Fleiri fréttir

Sjá meira
×