Fótbolti

Modric: FIFA er sama um leikmennina

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Luka Modric í baráttunni við Gylfa Þór Sigurðsson
Luka Modric í baráttunni við Gylfa Þór Sigurðsson vísir/ernir
Luka Modric, stórstjarna og fyrirliði króatíska landsliðsins í fótbolta, segir Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hugsi ekki um leikmennina.

„Í gærkvöldi var okkur sagt að leiknum yrði frestað. Þá fórum við seinna að sofa, en vorum svo vaktir um morguninn eins og við værum hermenn,“ sagði Modric eftir leik Króata og Kosovó sem fram fór fyrr í dag.

Leikurinn hafði átt að fara fram í gær, en var frestað vegna mikilla rigninga í Króatíu. Króatar mæta svo Tyrkjum á útivelli á þriðjudaginn.

„FIFA sýndi að þeim er sama um leikmennina. Það eina sem þeir hugsuðu um var að leikurinn yrði spilaður.“

„Ég vildi ekki spila áfram á laugardaginn, og dómarinn sagði mér að hann hefði verið á móti því frá því fyrir leik. Á þessum 20 mínútum voru fleiri atvik sem áttu frekar heima í „fyndin atvik heima við“ myndbandi en í alvöru fótboltaleik,“ sagði Modric.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×