Sprengjusérfræðingum tókst ætlunarverk sitt í Frankfurt Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. september 2017 19:10 Sprengjusérfræðingarnir Rene Bennert og Dieter Schwetzler sitja hér fyrir með aftengdri sprengjunni sem er bresk og af gerðinni HC-4000. Vísir/afp
Sprengjusérfræðingar í Frankfurt hafa gert gríðarstóra sprengju úr seinna stríði, sem fannst í miðborginni á þriðjudag, óvirka. Tilkynnt var um farsælan endi á ferlinu í dag. BBC greinir frá. Nokkuð erfiðlega gekk þó að aftengja sprengjuna að sögn sérfræðinga sem unnu að verkefninu en þeir áttu í basli með að fjarlægja stóran hluta sprengjubúnaðarins. Í gær voru nokkur hundruð sjúklingar fluttir á brott af spítölum í Frankfurt en þeirra á meðal voru fyrirburar og sjúklingar á gjörgæslu. Þá var mikill mannfjöldi fluttur af dvalarheimilum snemma í morgun, auk óbreyttra íbúa á svæðinu. Íbúar í Frankfurt bíða nú eftir leyfi til þess að snúa aftur til híbýla sinna í borginni en lögregla segir aftengingu sprengjunnar og brottflutninga á fólki hafa gengið samkvæmt áætlun að mestu. Töluverður fjöldi íbúa var þó ekki tilbúinn til brottflutninga á tilsettum tíma og mega einhverjir búast við sektum vegna þess. Gert er ráð fyrir að um 65 þúsund hafi verið fluttir á brott úr Frankfurt eftir að sprengjan, sem var um 1,4 tonn, fannst við jarðvegsvinnu á Wismarer-götu, skammt frá Goethe-háskólanum á þriðjudag. Um er að ræða stærstu skipulögðu brottflutninga á fólki í Þýskalandi síðan í seinni heimsstyrjöldinni en lögregla kannaði hvert einasta hús með hitaskynjunarbúnaði til þess að ganga úr skugga um að enginn hefði orðið eftir.
Tengdar fréttir Sjúklingum og fyrirburum komið í öruggt skjól vegna sprengju Viðbragðsaðilar eru nú byrjaðir að rýma sjúkrahús í þýsku borginni Frankfurt vegna sprengju úr seinna stríði sem fannst í miðborginni á þriðjudag. 2. september 2017 17:51 Flytja 60 þúsund manns úr Frankfurt Sprengja úr seinna stríði fannst í miðborg Frankfurt á þriðjudag. 31. ágúst 2017 07:25 Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Fleiri fréttir Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Sjá meira
Sjúklingum og fyrirburum komið í öruggt skjól vegna sprengju Viðbragðsaðilar eru nú byrjaðir að rýma sjúkrahús í þýsku borginni Frankfurt vegna sprengju úr seinna stríði sem fannst í miðborginni á þriðjudag. 2. september 2017 17:51
Flytja 60 þúsund manns úr Frankfurt Sprengja úr seinna stríði fannst í miðborg Frankfurt á þriðjudag. 31. ágúst 2017 07:25