Fótbolti

Þurfum að byrja betur og sækja hraðar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson var einbeitingin uppmáluð á æfingu íslenska liðsins í Tampere í gær.
Gylfi Þór Sigurðsson var einbeitingin uppmáluð á æfingu íslenska liðsins í Tampere í gær. vísir/epa
Eftir frækinn sigur á Kró­atíu í byrjun sumars standa strákarnir okkar vel að vígi í baráttunni um sæti á HM í Rússlandi næsta sumar. Ísland og Króatía eru jöfn að stigum í efsta sæti riðilsins en sigurvegari hans fer beint til Rússlands. Líklegt er að annað sæti riðilsins dugi til að komast í umspilsleiki í nóvember.

Landsliðið hefur verið saman í Finnlandi síðan á mánudag. Fyrstu dagana æfði það í Helsinki en hélt svo til Tampere á fimmtudag, þar sem leikurinn fer fram klukkan 16.00 í dag. Finnar eru í sárum eftir slæmt gengi í riðlinum en þeir eru með aðeins eitt stig að loknum sex leikjum. Það hefur allt gengið á afturfótunum og líklega er sárast tapið gegn Íslandi á Laugardalsvelli í fyrra, er Finnar misstu niður 2-1 forystu á lokamínútunum og fengu á sig afar umdeilt sigurmark.

Heimir Hallgrímsson segir þó að það sé annar bragur á íslenska liðinu í dag en fyrir ári, er strákarnir okkar voru enn að ná áttum eftir magnað sumar og frábært gengi á EM í Frakklandi.

„Það er höfuðverkur að velja liðið núna. Hópurinn er jafnari en áður og margir sem gera tilkall til þess að spila. Það góða er að margir hafa verið að spila vel með sínum félagsliðum. Þetta er því góður hausverkur,“ sagði Heimir Hallgrímsson við íþróttadeild í gær.

Alfreð Finnbogason og Theodór Elmar Bjarnason fagna marki þess fyrrnefnda í leiknum gegn Finnlandi í fyrra.vísir/anton
Betri en fyrir ári

Finnska liðið leyfði íslenska liðinu að vera með boltann í fyrri leik liðanna og beitti skyndisóknum með góðum árangri. „Þeir voru með fimm manna vörn og var erfitt að brjóta þá niður. Þeir gáfu okkur líka tíma með boltann og var Ísland með boltann í 70 prósent tímans í landsleik, sem hefur líklega ekki gerst áður. Við kunnum ekki að fara með það.“

Hann segir að það sé annar bragur á finnska liðinu nú en fyrir ári. Það var skipt um landsliðsþjálfara í desember og eins og Heimir bendir á eru yngri og frískari menn í liðinu. „Þeir hafa engu að tapa og verða mun ákveðnari fram á við en þeir voru í leiknum á Íslandi. Við verðum því að vera við öllu búnir,“ segir hann.

Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði reiknar með baráttuleik. Það sé mikill hugur í Finnum þrátt fyrir erfiða stöðu í riðlinum. „Þeir eru skipulagðir og þéttir til baka þegar þeir vilja það. Þeir eru betri nú en fyrir ári og munu ekki gefa okkur neitt eftir,“ segir hann.

Gylfi í fyrri leiknum gegn Finnum.vísir/anton
Verðum að skora fyrst

Gylfi Þór Sigurðsson segir eins og allir í íslenska liðinu að það ætli sér sigur í dag, enda markmiðið að fara til Rússlands næsta sumar. Minnugur leiksins í fyrra sé ljóst að strákarnir þurfi að vera á tánum í dag.

„Við þurfum að byrja af krafti og skora fyrsta markið. Ef þeir byrja eins og síðast og ná að skora, þá verður þetta erfitt. Þeir munu falla í vörn og leggja ofurkapp á að verjast. Markmiðið hjá okkur er því að spila betri sóknarleik en síðast og byrja leikinn mun betur.“

Síðar í kvöld tekur Króatía á móti Kósóvó í sama riðli og Úkraína mætir Tyrklandi í hálfgerðum úrslitaleik um hvort liðið ætli að blanda sér í toppbaráttu riðilsins á lokasprettinum.

Aron Einar
Gylfi

Tengdar fréttir

Jón Daði: Allt eða ekkert

Jón Daði Böðvarsson, framherji íslenska landsliðsins í knattspyrnu, byrjar vel hjá félagi sínu Reading í ensku B-deildinni. Jón Daði skoraði í sínum fyrsta leik fyrir félagið á dögunum.

Var hátt uppi eftir EM

Ragnar Sigurðsson var hetja íslenska karlalandsliðsins í fótbolta í dramtískum sigri á Finnum fyrir tæpu ári. Nú er Ragnar farinn frá Englandi og kominn aftur í rússnesku deildina. Hann leitar hins vegar ekki að blóraböggli út af því hvernig þetta endaði hjá Fulham.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×