Eyðilegging og dauði blasir við eftir Harvey Samúel Karl Ólason skrifar 1. september 2017 15:42 Um 325 þúsund manns hafa þegar sótt eftir fjárhagslegri aðstoð frá ríkinu vegna skemmda vegna Harvey. Vísir/EPA
Björgunarmenn fara nú um hverfi Houston, sem mörg eru enn að hluta til undir vatni, og leita að fórnarlömbum fellibylsins Harvey. Búið er að hækka opinbera tölu látinna í 39 en búist er við að hún muni hækka enn frekar. CNN segir minnst 47 vera látna. Það mun taka íbúa borgarinnar mörg ár að laga allt sem skemmdist og það mun kosta milljarða dala. Ríkisstjóri Texas segir að það gæti tekið ríkið mörg ár að „grafa sig upp úr þessum hörmungum“. Talið er að rúmlega 37 þúsund heimili hafi orðið fyrir verulegum skemmdum og tæplega sjö þúsund eru ónýt. Þar að auki urðu tugir þúsunda heimila fyrir lítilvægum skemmdum. Um 325 þúsund manns hafa þegar sótt eftir fjárhagslegri aðstoð frá ríkinu vegna skemmda vegna Harvey, samkvæmt AP fréttaveitunni. Forgangsverkefni embættismanna á svæðinu er nú að finna húsnæði fyrir þær 32 þúsund manneskjur sem halda til í neyðarskýlum. Sérfræðingar á sviði heilbrigðismála hafa varað við því að skólp sem skolaðist um allt í flóðunum geti gert fólk veikt og að fjöldi moskítóflugna geti tekið stökk á næstu vikum.
Fellibylurinn Harvey Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Ekið á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Sjá meira