Barcelona er með fullt hús stiga eftir sjö umferðir í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir öruggan 3-0 sigur á Las Palmas á Nou Camp í dag.
Óvíst var hvort leikurinn yrði spilaður vegna átakanna í Katalóníu og óskaði Barcelona eftir því að leiknum yrði frestað. Þeirri beiðni var synjað af spænska knattspyrnusambandinu. Í kjölfarið tók Barcelona í samráði við lögregluyfirvöld að engum áhorfendum yrði hleypt inn á leikvanginn sem er alla jafna þétt setinn af tæplega 100 þúsund áhorfendum.
Eitthvað virtist kyrrðin hafa áhrif á leikmenn í fyrri hálfleik því ekkert mark var skorað.
Börsungar voru hins vegar fljótir að venjast þögninni og skoruðu þrjú mörk í síðari hálfleik. Sergio Busquets opnaði markareikninginn áður en Lionel Messi gerði út um leikinn með tveim mörkum á sjö mínútna kafla.
Börsungar skoruðu þrjú í þögninni

Tengdar fréttir

Átök í Katalóníu
Minnst ellefu lögregluþjónar og 337 mótmælendur eru særðir.

Engir áhorfendur á Nou Camp í dag
Nú rétt í þessu hófst leikur Barcelona og Las Palmas í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta